jæja ívar andri,
nú er komin jól og þessi er ennþá hérna,
og í þokkabót er hann ekki einu sinni til sölu
annars er ég hrikalega ánægður með hann,
komst reyndar að því að einhver hafði reynt að skipta um framljósaperur og ekki kunnað að setja þær aftur í og eyðilagt bæði framljósin, þannig að ég sé fram á að skipta þeim út fyrir e-h smekkleg aftermarket ljós, ætla setja 6k xenon í hann í leiðini.
er búinn að fá undir hann style44 felgur, 17" á heilsársdekkjum,
bíllinn er á 15" nagladekkjum núna, og hefur verið alveg fáránlega steddý í hálkuni, kom mér svo illa á óvart í gær að hannn komst algjörlega 0% í snjónum, ég hef átt nánast alla mína bmw akkurat yfir hávetrartíman, og vel dekkjaðir hafa þeir verið algjörlega í lagi, en ég hef aldrey kynnst öðru eins og í gær. bíllinn sat á kviðnum og spólaði á einari við mynnstu fyrirstöðu. og ég gat ekið hringina í kringum hann á framdrifinni jdm dós á sléttum sumardekkjum.