by íbbi_ » Thu 27. Jun 2013 15:33
ég þakka mikinn áhuga.
en þætti mjög vænt um að menn slökuðu aðeins á með hvað er verið að bjóða mér.
milljón er EKKI skiptiverð. heldur staðgreiðsluverð á bílnum,
ég er nú vanur að selja bíla á bland í massavís, en sumt af því sem er búið að vera bjóða mér hérna er svo glórulaust að maður á varla...
ef þú átt gamlan E36 bíl. gamlan E39 bíl eða eitthvað álíka og ert að spá í að bjóða mér hann og einhverja hundrað þúsund kalla þá hafna ég því alfarið strax.
það hvílir ekkert á bílnum, engin gjöld í vanskilum og því engin pressa á mér að losa hann, og því engar líkur á að ég gefi bílinn fyrir eitthvað rugl. þetta verð er algjörlega í lagi. ef það fæst ekki fyrir hann þá mun ég bara eiga hann sjálfur og setja í geymslu.
ég vona að þetta virki ekki á menn sem hroki, og biðst afsökunar á því ef svo er. en ég frábið mér fleyri gjörsamlega óraunhæfum tilboðum
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll