gardara wrote:Powerbleeder ftw!
Klárlega, var að fá póst frá einum mjög reyndum og vandvirkum sem sagði að þetta væri í raun 3 man job ef vel ætti að gera, einn á ventlinum, einn á pedala og einn á forðabúrinu, því að það mætti alls ekki falla of mikið þar sem það sýnir oft að það sé nóg í því þó svo að það sé komin loftbóla við slönguna sem fer í master.
Gunni fóturinn á þér hlýtur að vera eitthvað spes, ég er búinn að pumpa pedalann miklu oftar en þetta, sîðast í gær, og það án árangurs. Ég var kominn með krampa í fótinn.
Það er ekki séns að þú getir lofttæmt kerfið án þess að hleypa loftinu eitthvað. Það fer aldrei alla leið frá þræl, í gegnum master og upp í forðabúrið með því að pumpa bara hefði maður haldið...





