Já mig langar svoldið að prófa þetta, en held að ég mun ekkert gera það þar sem hann er gullfallegur eins og hann er núna. Og strákar strákar, þetta M merki fékk að fjúka af sama dag og ég fékk hann, líka carbon fiber splitterarnir Setti óvart þessa mynd þar hún sýnir kastarana vel, en annars eru nýrri myndir af bílnum á bls 4. Ekkert M merki á nýranu og engir splitterar, endilega tékka á þeim, mun fallegri
Blaðsíða 5, og fólk enn að tuða yfir grillmerkinu sem var búið að fjarlægja áður en þú bjóst til þráðinn.
Hérna, ég krotaði eldsnöggt yfir það í photoshop, sem þér er velkomið að nota ef þú ert kominn með hundleið á því að þetta merki sé helsta umræðuefnið í þræðinum.
Takk fyrir myndina Aron, held að ég sleppi þessu. Finnst hann mun meira clean eins og hann er núna, þótt svo að gulu kastararnir eru nú ekkert ljótir imo, bara aðeins meira race look... ekkert að því!
En annars verður þessi mest allan tímann inni í vetur, ætla að reyna að dekra við hann þá:
-Ný OEM LED afturljós (mín eru orðin sjúskuð og perur farnar að deyja) -Angel Eyes -Ný sumardekk -Dr. Leður á leðrið -BMW-krafts rammar (verð að redda mér þannig!) -Mögulega nýjar mottur (mínar orðnar sjúskaðar) -Xenon eða LED í kastarana -Mögulega ljósar filmur -Svo auðvitað halda honum vel með góðu bóni -Svo ætla ég að henda honum í mass næsta sumar (of mikið af fínum rispum á lakkinu)
Held að ég muni ekki gera þetta allt í vetur, en reyni að gera mitt besta, enda ekkert það ódýr listi.
Þessi kominn inn í skúr og ég er að reyna að finna ábreiðu yfir hann. Ætla að reyna eins og ég get að spara ekki í hann í vetur til þess að gera hann mega nice þegar hann kemur út aftur næsta sumar.
Var akkurat að klára að taka hann með 3ggja þrepa bóninu frá Mothers. Eðal stöff. Lítur ekkert smá vel út!!
Gleymdi svo að nefna það hér fyrir ofan að ég ætla að láta taka felgurnar í gegn á honum, eru litaðar eins og er, sem ég er ekki að fýla. Ætla að fá OEM lookið á þær aftur.
Keypti LED angel eyes 7000k. Mun hvítari í persónu, náði reyndar ekki góðum myndum því ég kann ekki að stilla þessa myndavél!
Tók svo smá myndbrot af fade on/fade out systeminu, tengdi við interior ljósin, þannig að angel eyes kvikna þegar ég opna bílinn með lyklunum (mjög cool!)
Svo lenti ég í því óhappi þegar ég var að skrúfa eitt horn stefnuljósið á að festingin brotnaði, ég límdi festinguna svo með epoxy lími, en um leið og ég skolaði bílinn (passaði að vatn myndi ekki fara á ljósin) kom samt einhver raki inn og límið losnaði! Tók myndir af þessu, vonandi þið getið komið með hugmyndir fyrir mig hvað er best að gera í þessu veseni!!!
svo hérna sjáið þið skrúfuna, og lítil brot af festingunni sem brotnaði: