by íbbi_ » Mon 03. Dec 2012 13:54
ég var með tvo svona bíla sem DD báðir 745, báðir 2003 minnir mig. og verið talsvert á hinum ýmsu E65/6
ég kann mjög vel við þessa bíla. þeir eru afar modern allir á allann hátt, og þ.a.l virkar þetta ennþá mjög nýmóðins á mann í dag,
mér finnst nánast möst að hafa comfort stólana í þeim, standart stólarnir eru bara ekki á pari við það þægindalevel sem restin af bílnum er.
mér finnst menn líka hafa verið að lenda í heddveseni með N62, ventlafóðringar og olíubrensla. dýrt stöff
í samanburði við eldri sjöur þá kemur hann bara lala út. flestir E38 sem maður ekur í dag eru úr sér gengin flök, E32 sömuleiðis, en mér finnst E38 hafa betri aksturseiginleika heldur en E65, það þekkja það flestir sem hafa átt E32/38 hvernig þeir byrja að höndla á mjög mikilli ferð. þá er allt í einu stærð og þyngd bílsins nánast horfinn fyrir manni,
E65 bíllinn er ekki jafn mikill "driver" E38/2 gat maður djöflað á hlið í gegnum hringtorg og fundið bmw genin alveg skýna í gegn, en karakterinn er dáldið annar í E65, en þetta eru nú ekki stóratriði þar sem bíllinn er ekki ætlaður í svona akstur til að byrja með.
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll