Blessaður taktu stóran hring frá þessu og það strax !! þetta er helviti að reka þetta .
Ég ráðlagði vini minum að alls ekki kaupa Touareg en hann fór og talaði við einhvern verkstæðis kall og hann sagði honum að 2006 og uppúr væri ok
hann er búinn að eiga bílinn í tæpt ár og er hann kominn í 1,1 milljón í viðgerðir á honum en ath. að hann keypti umboðsbíl ,diesel,3,0,einn eigandi ,ek 90 þús.
Hann á reyndar skít nóg af pening (Sjómaður)
Það er blátt bann hjá öðrum umboðum að taka þessa bíla uppí nýja eða dýrari og er það að hluta til skýring hvers vegna 2004 árg af touareg er fáanlegur undir
1,5 milljón .Farðu á sölu og bjóddu touareg í skipum upp í eitthvað !! Bílasalar grípa bara um ennið á sér þetta er vonlaust !






