Aðalfundur DDA 2012
Aðalfundur Driftdeildar AÍH verður haldinn sunnudaginn 4. nóvember næstkomandi kl. 13:00 í íþróttarhúsinu Álfafelli við Strandgötu í Hafnarfirði. Allir driftarar og áhugafólk hvatt til að mæta, framtíð félagsins veltur á því. Fólk með tillögur að breytingum einnig hvatt til þess að koma þeim framfæri á fundinum, svo hægt sé að ræða þær og kjósa um.
Dagskrá:
1. Setning
2. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu
3. Gjaldkeri gefur skýrslu
4. Kosning stjórnar 2013
5. Tillögur að breytingum ræddar
6. Önnur mál
7. Fundarslit
Fundurinn á smettisskinnunni.



