Zed III wrote:
svona ætla ég að tækla mitt :
dremmel tool með ávalari tönn, slípa upp allt ryð, setja rust converter (til í n1), setja grunn, kannski sparsl eftir stærð holu, bletta, setja svo jafnvel naglalakkaglæru yfir til að fá meiri vörn.
Þú setur ekki rust converter á svæðið ef þú ert búinn að slípa allt ryð í burtu. Rust converter verður að hafa ryð til þess að converta. Flestir, ef ekki allir, rust converterar mæla með þvi að lausa ryðið, það sem er við það að flagna, sé hreinsað af og converterinn borinn á. Sérstaklega er tekið fram að það þurfi að vera áfram ryð til þess að vinna með.
Miklu frekar myndi ég telja líklegt til góðrar niðurstöðu að fara eftir þeim skrefum sem þú nefndir og nota frekar sýrugrunn eða álíka mjög sterkann grunn í stað rust convertersins.
Ps. Ætla ekki að alhæfa þetta með rust converterinn, en ég hef enn ekki séð rust converter sem ekki þarf ryð til þess að vinna með.