Aron123 wrote:
BirkirB wrote:
Ég skil þetta ekki heldur. Þetta hefur alltaf verið svona og það sér ekkert á olíunni. Dettur ekkert í hug hvert vatnið gæti hafa farið...
Það leynir sér ekkert ef heddpakkning er farin...
já þetta er mjög skrítið.. hefur þetta alltaf verið svona þegar þú attir hann ?
Já, allavega eins langt aftur og ég man. Þeir sem komu síðast nálægt kælivatninu á bílnum voru bifvélavirkjar á Húsavík þegar það var skipt um vatnskassa. Varla hafa þeir sett of lítið vatn á bílinn aftur því hitamælirinn hefur aldrei farið yfir miðju í minni eigu.
Það eina sem mér dettur í hug er að stærri vatnskassi skýri þetta + stirði vatnslásinn því að vatnið fer hvergi af bílnum. Sá aldrei bleytu undir bílnum. Reykurinn eða gufan hefur alltaf verið svona, meira ef eitthvað er eftir að pústið var opnað. Mér finnst gufan ekkert skrýtin miðað við 16 ára bíl.