Hann fer af gjöfinni, nema að mótorinn deyji og þ.a.l. virki bremsurnar ekki sem skildi? Nema stýrið hafi losnað? Hef séð video þar sem að svona quick release stýri poppa af. Erfitt að segja.
íbbi_ wrote:virkar á mann eins og undirstýring. gæti verið vegna þess að hann hafi hikað og slakað aðeins á gjöfinni
Undirstýring kemur yfirleitt ekki við það að fara af gjöfinni því að þá flyst þunginn á framdekkin, hann hefði síðan í raun yfirstýrt frekar ef hann hefði farið snögglega af gjöfinni (lift oversteer)
Yfirlið, gæti hafa fengið fyrir hjartað. Þegar þú ert á 200km hraða þá þarf svo lítið að gerast svo að hlutirnir fari hræðilega illa. Hins vegar keyrir hann bara inn í klettinn, hann bremsar ekki og beygir ekki. Mjög ljótt slys og finn til með fjölskyldu og vinum hans. Það hefur enginn annar fengið að blasta jafnoft í græjunum hjá mér enda hljóðið í þessum græjum hans legendary.