Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Krónan ...

Postby Giz » Fri 24. Feb 2012 01:52

gstuning wrote:Það er ekki það sem ég meinti, ég meinti að Ísland yrði líkt og Noregur er,

dýrt að lifa overall, enn góð lífsgæði.


Ég veida, er bara að snúa útúr og vera með stæla :!:

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Krónan ...

Postby Thrullerinn » Mon 27. Feb 2012 16:56

Velkomin í Legoland.
http://www.dv.is/lifsstill/2012/2/27/dy ... i-billund/

Nei í alvöru, fór til kaupmannahafnar í 4 daga um daginn og maður þarf bara að slökkva á of dýrt pælingunni.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Krónan ...

Postby Jón Ragnar » Mon 27. Feb 2012 19:47

Thrullerinn wrote:Velkomin í Legoland.
http://www.dv.is/lifsstill/2012/2/27/dy ... i-billund/

Nei í alvöru, fór til kaupmannahafnar í 4 daga um daginn og maður þarf bara að slökkva á of dýrt pælingunni.



Greinilegt að viðkomandi hafi ekki farið í Disney world Florida :D

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Sun 11. Mar 2012 17:19

Gott að seðlabankinn er að fara vel með peningana okkar.

http://m5.is/?gluggi=frett&id=164645

Ekki nema milljarður sem var verið að henda.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Fri 27. Jul 2012 20:08

Evran ekki lægri síðan vorið 2009 og Hreiðar Már kominn á stjá.

Er þetta allt að koma til og 2007 handan við hornið?!?!?!?!? :lol:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Hemmi » Fri 27. Jul 2012 21:29

bimmer wrote:Evran ekki lægri síðan vorið 2009 og Hreiðar Már kominn á stjá.

Er þetta allt að koma til og 2007 handan við hornið?!?!?!?!? :lol:


Það var töluvert skemmtilegra að borga skólagjöldin hjá mér í vikunni en fyrir ári síðan.
User avatar
Hemmi
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1045
Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Location: Spánn

Re: Krónan ...

Postby jonthor » Mon 30. Jul 2012 11:40

bimmer wrote:Evran ekki lægri síðan vorið 2009 og Hreiðar Már kominn á stjá.

Er þetta allt að koma til og 2007 handan við hornið?!?!?!?!? :lol:


Ástandið hér er ekki eins slæmt og margir spáðu, en aðallega erum við að koma betur út í samanburði við önnur ríki sem eru núna að fara illa.

Ofsalega kemur þetta nú á óvart, að bontlaus lán til ónýtra banka og peningaprentun séu ekki lausnin á vandamálum fjármálakerfisins í EU og USA? Vandamál Evrusvæðisins eru rétt að byrja og ef tekst að afstýra falli banka og ríkja með áframhaldandi skammti af sömu lyfjagjöf (þ.e. aukinni skuldsetningu) þá verður einfaldlega til enn stærra langtímavandamál með sambærilegum hætti og gerðist í Japan.

Það er bara ein raunhæf lausn til og það eru afskriftir. Þeir sem lánuðu of skuldsettum ríkjum og bönkum þurfa að sætta sig við að hluti af peningnum er tapaður. Afleiðingarnar af slíku eru það sem allir óttast, bókstaflegt hrun fjármálakerfisins. En hversu langt á að ganga til að afstýra því og hvenær er kostnaðurinn orðinn meiri til langs tíma?

Ég vona amk. að einhver sé að vinna þá vinnu að greina inter-connectivity fjármálakerfisins og afleiðingar þess ef ákveðinn hluti banka fer, greina hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir kerfishrun þrátt fyrir að verst stöddu bankarnir fari á hausinn og ákveðin ríki semji um lækkun skulda.

Það er amk. enginn lærdómur dreginn af þessu öllu ef menn telja lausnina felast í meira af því sama og olli vandamálinu til að byrja með.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby fart » Mon 30. Jul 2012 15:22

Sammála Jonthor með marg þarna, að lána einhverjum sem er að drukkna í skuldum er aðferð lánardrottins til að halda lífi í suldaranum eins lengi og hægt er og forðast afskriftir með því að pressa skuldarann í aðgerðir sem færa ábyrðina af of mikilli lántöku yfir á einhvern annan, t.d. þegna viðkomandi lands, um ókomna framtið.

Eina lausnin er einhverskonar núllstilling, afskriftir hjá fólkinu og fyrirtækjum, þá tapast útlán locally, sem þýðir svo tap á útlánum hjá einhverjum öðrum. Á endanum eru það fjárfestar sem keyptu skuldabréf þýskra/franskra/hollenskra osfrv. banka sem eiga að tapa þessu, þeir tóku áhættu með að kaupa skuldir banka sem lánuðu óábyrgt til suður Evrópu. Local ríkin í Ger/Ned/Fra o.s.frv. verða svo bara að þjóðnýta ónýtu bankana sína, og suður Evrópa lika. Bankakerfið er hvort eða er allt of stórt og investment banking 1990-2008 módelið er ónytt og greinilega ekki sjálfbært. Það er búið að eyða þessum peningum og þeir munu ekki nást til baka. TAPAÐ er orðið, Innleysa tap er lausnin.

Málið er bara að EU-menn (háttsettir) keppast að halda skrímslinu eins stóru og hægt er, þá hafa þeir meriri völd o.s.fr. auk þess sem þeir þurfa ekki að innleysa tapið af bullinu. EU í núverandi mynd sem og Evran eru doomed, EU er samt ekkert doomed né Evran.

Menn eru alltaf að fókusera á að reyna að endurvekja vöxt i EU (nú eða heiminum) en fatta ekki að síðustu 5-10 árin fyrir 2008 eyddu menn andvirði 20 ára af vexti með því að taka lán, sem juku uppbyggingu ríkisstjórna og eyðslu almennings. Nu þurfum við bara að sætta okkur við samdráttarskeið almennt í svona 5 ár í það minnsta með einu skell ári til að ástandið verði raunverulegt.

Varðandi Ísland þá er samanburðurinn ómarktækur á alla vegu, enda gjaldeyrirshöft sem takmarka útflæiði og festir pening á Íslandi sem myndi mögulega leita annað. Ísland minnir mig dálitið a Truman show, fínt ef það er skoðað innanfrá, frábært ef það er skoðað utanfrá, en enn vita að það er ekki raunverulegt.. Hvert er t.d. tap seðlabanka af niðurgreiðslu gjaldeyris? Það er voða auðvelt að líta vel út á vigtinni miðað við aðra ef menn eru alltaf að fokka í henni til að plata sig.

Bear Grills drakk sitt eigið hland að því að það var ekkert vatn í boði, nokkuð viss um að hlandið yrði ekki fyrsti kostur ef það hefði verið einn kaldur á kantinum fyrir framan hann.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby jonthor » Mon 30. Jul 2012 16:05

fart wrote:Menn eru alltaf að fókusera á að reyna að endurvekja vöxt i EU (nú eða heiminum) en fatta ekki að síðustu 5-10 árin fyrir 2008 eyddu menn andvirði 20 ára af vexti með því að taka lán, sem juku uppbyggingu ríkisstjórna og eyðslu almennings. Nu þurfum við bara að sætta okkur við samdráttarskeið almennt í svona 5 ár í það minnsta með einu skell ári til að ástandið verði raunverulegt.


Nákvæmlega. Það er búið að taka út framtíðarhagvöxt með aukinni skuldsetningu síðustu áratuga. Reyndar er ekki víst að við þurfum 5 ára samdrátt, það getur tekið mikið styttri tíma að komast af stað aftur ef afskriftin endurspeglar rauvirði og raunverulega stöðu. Hins vegar er langt samdráttarskeið alveg klárt ef ekki verður farið í afskriftir, því þá er framundan langt deleveraging skeið með tilheyrandi stöðnun og í raun alls ekki víst að hægt sé að vinna sig út úr því nema á áratugum ef það er hægt á annað borð.

En eins og þú segir þá er viðskiptamódel banka (viðskipta og fjárfestingar) eins og það hefur verið keyrt síðustu áratugi unsustainable og því þarf að gjörbreyta, ekki bara í tengslum við mögulegan aðskilnað á milli viðskipta og fjárfestingarbanka, heldur hugsunin um svokallaðar "secure assets" (eins og fasteignir og ríkisskuldabréf) og vigtun þeirra í CAD, ríkisábyrgð á innistæðum og þar fram eftir götunum.

Þar að auki er ég þeirrar skoðunar að FIAT gjaldmiðlakerfi heimsins sé eitthvað sem þarf að breyta og eitthvað sem við munum sjá breytast á okkar líftíma.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby ///M » Mon 30. Jul 2012 16:23

jonthor wrote:Þar að auki er ég þeirrar skoðunar að FIAT gjaldmiðlakerfi heimsins sé eitthvað sem þarf að breyta og eitthvað sem við munum sjá breytast á okkar líftíma.


Einhverjar pælingar hvernig það ætti að breytast? (ávalt áhugavert topic)
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Krónan ...

Postby Jón Ragnar » Tue 31. Jul 2012 10:33

Þessi styrking krónunar, er þetta einhver bóla eða er þetta e-ð til langtíma?

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Krónan ...

Postby gstuning » Tue 31. Jul 2012 12:56

Eins og segir í fréttum þá tengja þeir þetta við árstíðar bundna hreyfingu á gjaldeyrir að koma inní landið.
Gefið að það sé rétt þá má gera ráð fyrir að evran styrkist aftur á móti krónunni í vetur.

Hvort það verði lægra enn síðasta vetur er svo spurningin.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Krónan ...

Postby Stanky » Tue 31. Jul 2012 23:30

Jón Ragnar wrote:Þessi styrking krónunar, er þetta einhver bóla eða er þetta e-ð til langtíma?


Hefur alltaf styrkst á sumrin síðan 2008 vegna ferðamanna. Skapar mikinn erlendann gjaldeyri í kerfið á stuttum tíma sem veldur því að krónan styrkist.

Krónan veikist svo í haust aftur, uppúr lok sept.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Re: Krónan ...

Postby fart » Wed 01. Aug 2012 08:05

Guys common, það er bull og vitleysa að vera að tala um styrkingu eða veikingu krónunar þegar þetta er basically one way street.

Á meðan krónan er ekki frjáls vitum við ekkert hvort að hún er að styrkjast eða veikjast, fjárfesting Íslendinga erlendis er bönnuð, ferðagjaldeyrir takmarkaður, innflutningur takmarkaður, útflutningur bundinn því að gjaldeyri sé skilað heim o.s.frv.

Þessi umræða um veikingu eða styrkingu er MARKLEYSA
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby fart » Tue 18. Sep 2012 12:53

Það hljóta að teljast nokkuð merkilegar fréttir þegar Seðlabankinn tekur svona til orða. En samt ánægjulegt þegar menn eru tilbúnir að horfast í augu við mistök og í raun stórslys.

Seðlabankinn: Reynsla Íslendinga af sjálfstæðri peningastefnu sláandi

Samt merkilegt hvað menn ná að horfa á "fyrir hrun" þannig að pólitíkin er vel til staðar.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 51 guests