2003/2005 E85 Z4 - Snjóbíll bls. 8

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby SteiniDJ » Mon 02. Jul 2012 18:13

Takk drengir!

En ég finn enga þörf á að lækka bílinn, hann er nógu nálægt malbikinu fyrir mig. :lol:

Og Sævar, kíkjum á þetta fljótlega! :)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby Hrannar E. » Thu 12. Jul 2012 12:39

Mætti þér í Grindavík áðan, helvíti flottur í persónu :)
BMW e39 540i 2000
Hrannar E.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 595
Joined: Tue 21. Oct 2008 19:45

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby Hreiðar » Fri 13. Jul 2012 00:28

Alveg að bjarga þessum bíl. Hlakka til að sjá myndir af honum þegar Glitrandi er búinn að sjæna hann! Sést svoldið á myndunum að hann þarf á því að halda. Bara flott! 8) :thup:
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby IvanAnders » Fri 13. Jul 2012 09:01

SteiniDJ wrote:Væri ekkert á móti því, ekkert sérlega smekklegt þarna.

Finnst pústhljóðið í M54 ekkert til þess að hrópa húrra fyrir á lágum snúning, væri ekkert leiðinlegt að gera eitthvað í því (en halda því hóflegu). Í versta falli fær maður sér overlay á stútana. :mrgreen:


Mér fannst nótan sjálf á lágum snúning á M54B30 einmitt vera flott, Vantar bara að hækka í henni.
Þú ert hins vegar að koma frá S62 sem er náttúrulega með skemmtilegri tón!
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby SteiniDJ » Fri 13. Jul 2012 09:27

Hrannar E. wrote:Mætti þér í Grindavík áðan, helvíti flottur í persónu :)


Takk takk! Tók skemmtilegan hring í gær og nýtti sólina. Bara gaman að keyra Reykjanesbrautina með toppinn og rúðurnar niðri!

Hreiðar wrote:Alveg að bjarga þessum bíl. Hlakka til að sjá myndir af honum þegar Glitrandi er búinn að sjæna hann! Sést svoldið á myndunum að hann þarf á því að halda. Bara flott! 8) :thup:


Takk fyrir það Hreiðar! Nóg eftir að gera, næsta skref er meðferð hjá Glitrandi. Get sjálfur ekki beðið eftir því að sjá muninn, ætla að biðja hann um að vera trigger happy á myndavélinni ef hann getur! Kæmi mér samt ekki á óvart ef að bíllinn þyrfti smá kel frá sprautubyssunni á vissum stöðum.

IvanAnders wrote:
SteiniDJ wrote:Væri ekkert á móti því, ekkert sérlega smekklegt þarna.

Finnst pústhljóðið í M54 ekkert til þess að hrópa húrra fyrir á lágum snúning, væri ekkert leiðinlegt að gera eitthvað í því (en halda því hóflegu). Í versta falli fær maður sér overlay á stútana. :mrgreen:


Mér fannst nótan sjálf á lágum snúning á M54B30 einmitt vera flott, Vantar bara að hækka í henni.
Þú ert hins vegar að koma frá S62 sem er náttúrulega með skemmtilegri tón!


Ég var að hugsa um það í gær hvað hljóðið væri nú ekkert svo slæmt (þetta er þó M54B25, er það ekki?)! Mætti vera meira rumble!

Toppar auðvitað lítið S62 á ferðinni. Ef að peningar væru engin fyrirstaða, þá væri sko ekki leiðinlegt að bruðla í swap, en ég held að maður leyfi veskinu (og almennri skynsemi) að ráða hérna. :lol:
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby SteiniDJ » Sat 28. Jul 2012 12:01

Fer í mössun næstu helgi hjá Glitrandi. Það þarf sennilegast að sprauta einhverja boddí hluta á bílnum, en ég bíð mjög spenntur eftir því að sjá niðurstöðurnar. Ætla að reyna að tala hann í að taka einhverjar 50/50 myndir, því ég hugsa að þær verði rosalegar.

Svo er fullur kassi af varahlutum sem fara í hann 3 september þegar að bíllinn fer í smá aðhlynningu hjá eðalbílum. Þetta eru mest slithlutir í stýrisbúnaði að framan. Þegar þeir eru komnir í þá fer hann í skoðun þar sem ég reikna fastlega með því að hann fái engar athugasemdir og þá fara hlutirnir að róast.

Image
Búja, Bilstein!

Eftir öll þessi herlegheit líða hjá, þá taka rólegri hlutir við. Innréttingin í bílnum hefur lifað betri tíma en er þó fjarri því að vera slæm. Hér er það sem ég vil gera við hana á næstu mánuðum:

  • Laga saumsprettu í sæti farþegamegin
  • Kaupa nýjar mottur (reikna fastlega með því að fara í OEM beige - langar í svart en held að það komi ekki sérlega vel út)
  • Laga naglarispur á ákveðnum stöðum, þarf annaðhvort að vefja þessi svæði, t.d. með CF, eða skipta þeim út. Hvernig haldið þið að CF interior með beige leðri kæmi út? Ég er ekki alveg seldur þar.
  • Skipta um lok á öskubakka ($$$, útaf einhverri absúrd ástæðu)
  • Gírhnúi - 5 spd ZHP
  • Skipta út hátalara farþegamegin
  • Djúphreinsa teppi

Ný framrúða er í pöntun í þokkabót. Allt að gerast!

Tók mig síðan til og tók 2.5i merkin af hliðinni. Finnst það satt að segja mikið lýti að hafa þau þarna, enda hefur það ekki verið venjan síðustu ár hjá BMW þar til þeir fóru að framleiða bíla í USA, eftir því sem ég best veit. Bölvaðir. Auðvelt ferli fyrir þá sem vilja gera svipað við sína bíla, skrifaði DIY um þetta fyrir mörgum árum hér. TL;DR: Tannþráður + hárblásari + WD-40, svo létt mössun. Bendi mönnum svo á DIY safnið okkar sem mætti alveg vera stærri m.v. fjölda kunnáttumanna hérna. :)

Ætla svo að reyna að taka einhverjar ásættanlegar myndir eftir mössunina.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby bimmer » Sat 28. Jul 2012 13:25

SteiniDJ wrote:Toppar auðvitað lítið S62 á ferðinni. Ef að peningar væru engin fyrirstaða, þá væri sko ekki leiðinlegt að bruðla í swap, en ég held að maður leyfi veskinu (og almennri skynsemi) að ráða hérna. :lol:


Nei nei, setur S85 í hann, með 2 blásurum. Slammar hann svo, skekkir fjöðrunina að aftan og svo
stretchuð dekk allan hringinn. Málar svo felgurnar í einhverum random lit til að vera cool.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby einarivars » Sat 28. Jul 2012 14:03

bimmer wrote:
SteiniDJ wrote:Toppar auðvitað lítið S62 á ferðinni. Ef að peningar væru engin fyrirstaða, þá væri sko ekki leiðinlegt að bruðla í swap, en ég held að maður leyfi veskinu (og almennri skynsemi) að ráða hérna. :lol:


Nei nei, setur S85 í hann, með 2 blásurum. Slammar hann svo, skekkir fjöðrunina að aftan og svo
stretchuð dekk allan hringinn. Málar svo felgurnar í einhverum random lit til að vera cool.

=D> =D>
BMW E30 325i '87 M-tech 1
einarivars
Getawaybílstjóri
 
Posts: 811
Joined: Sat 12. Jul 2008 18:16

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Staðan í dag bls. 7

Postby Thrullerinn » Sat 28. Jul 2012 22:02

Á sílsa ef þér vantar ;)
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Nýjar myndir bls. 6

Postby Danni » Sun 29. Jul 2012 01:12

bimmer wrote:
SteiniDJ wrote:Toppar auðvitað lítið S62 á ferðinni. Ef að peningar væru engin fyrirstaða, þá væri sko ekki leiðinlegt að bruðla í swap, en ég held að maður leyfi veskinu (og almennri skynsemi) að ráða hérna. :lol:


Nei nei, setur S85 í hann, með 2 blásurum. Slammar hann svo, skekkir fjöðrunina að aftan og svo
stretchuð dekk allan hringinn. Málar svo felgurnar í einhverum random lit til að vera cool.


Ekki gleyma að stickerbomba einhvern body hlut... bensílokið eða eitthvað
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Staðan í dag bls. 7

Postby SteiniDJ » Sun 29. Jul 2012 19:05

Þið hittuð naglann á höfuðið strákar mínir. Límmiðar, ónýt fjöðrun og vélar sem kosta einhvern smáaur!!! Fuck felgur! :D

Annars gleymdi ég fram að ég ætla líka að setja cruise control í hann. MUST að hafa þannig búnað í langferðum.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Staðan í dag bls. 7

Postby bimmer » Sun 29. Jul 2012 19:59

SteiniDJ wrote:Þið hittuð naglann á höfuðið strákar mínir. Límmiðar, ónýt fjöðrun og vélar sem kosta einhvern smáaur!!! Fuck felgur! :D

Annars gleymdi ég fram að ég ætla líka að setja cruise control í hann. MUST að hafa þannig búnað í langferðum.


Viltu ekki bara metanbreyta honum líka????
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Staðan í dag bls. 7

Postby SteiniDJ » Sun 29. Jul 2012 20:03

:lol: Skottið leyfir það ekki, yrði að festa kútana á skottlokið og það æpir nú bara non-oem.

Cruise er nauðsynlegt á langferðum, ég átti erfitt með mig eftir allar þessar langferðir sem ég er búinn að fara í sumar. Besta við þessa zetu er að það er nóg að skera út fyrir cruise-stönginni og koma henni fyrir og þá er maður kominn með cruise control! 8)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Cruise, djúphreinsun og einkanúmer bl

Postby SteiniDJ » Sat 15. Jun 2013 12:41

Búinn að vera að brasa aðeins í bílnum síðustu dagana. Setti í hann cruise control (skjótið mig), djúphreinsaði teppin og fékk mér einkanúmer sem ég er nokkuð hrifinn af.
Image


Hér Cruise control stöngin. Þetta mod var svo hlægilega einfalt og ódýrt, að ég er mest hissa á því að þetta hafi ekki fylgt bílnum. Hrikalega sáttur með þessi viðbót.

Síðan djúphreinsaði ég teppin í bílnum og það var virkilega áhugavert ferli. Ef ég ætti að endurtaka það, þá myndi ég verða mér út um sterkari sápu (eða hreinsiefni) ásamt því að taka teppið einfaldlega úr bílnum. Sumir blettir voru nánast ógerlegir, en ég lét þetta þó duga í bili!

Fyrir:

Image

Eftir:

Image

Affallsvatn eftir tvö sæti:

Image

Image

Þetta svarta er leðja sem safnaðist saman á botninum. Nasty.


Mæli með því að menn leigi sér teppahreinsivél með litlum haus. Þetta tekur tíma, en munurinn er rosalegur!

Og svo einkanúmer :mrgreen:

Image
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: 2003/2005 E85 Z4 - Cruise, djúphreinsun og einkanúmer bl

Postby íbbi_ » Sat 15. Jun 2013 15:42

haha brilliant númer
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 39 guests