BMW e36 323i coupe - sold

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW e36 323i coupe - sold

Postby BirkirB » Sun 08. Jul 2012 22:32

Til sölu BMW e36 323i (upprunalega 320i). Búinn að eiga þennan í að verða 5 ár, langar að breyta til og það er ekkert verra að eiga pening á meðan maður er í skóla.

Helstu upplýsingar:
Skráningarnúmer: UU-099
Fastanúmer: UU-099
Tegund: BMW
Undirtegund: 323i (skráður 320i)
Litur: Fjólublár (madeira schwartz)
Skráður seint árið 1996 (október eða eitthvað)
Staða: Í lagi
Næsta aðalskoðun: 2012
Vél: M52B25
Ekinn 186þús. km (mótor ekinn u.þ.b. 40þús km minna en ég get því miður ekki staðfest það 100%)

Það bilaði víst 2l mótorinn sem var í bílnum þegar hann var keyrður u.þ.b. 40þús. km og B&L svöppuðu nýjum 2,5l mótor í staðinn (M52B25).
Þar af leiðandi er litla drifið og öxlar í honum.
Þó að þetta sé M52B25 skráður 170hö, þá gerir M50 soggreinin og opnara púst mikið fyrir þessar vélar og ég efast um að flækjurnar skemmi fyrir. Semsagt alveg sprækur bíll.

Innrétting er í ágætu ástandi, blátt tauáklæði á sætum.
Analog miðstöð og klukka
Topplúga
Armrest
Niðurleggjanleg sæti
Lakkið er alveg fínt miðað við 16 ára bíl, mjög lítið um grjótkast og laust við rispur.
Ég hef hugsað vel um þennan bíl, þrifið hann og bónað reglulega og sinnt viðhaldi og olíuskiptum. Honum hefur verið lagt á veturnar í minni eigu þar til síðasta veturs. Geymdur inni ef ég hef haft tök á því.
Þessi bíll spólar á Einari þannig að ég hef ekkert sett hann á hlið.


Viðhald:
Ný afturdekk í desember 2011, framdekk eru góð
Skipt um bremsuklossa að framan haust 2011
Nýr rafgeymir í desember 2011, 75Ah
Smurður (á ca. 5000km fresti) síðast í vor hjá Eðalbílum og tékkað á olíu á gírkassa og drifi. Allt í góðu þar.
Skipt um stærri viftureimina í vor

Breytingar:
OEM Mtech framstuðari
OEM Mtech speglar
BBS RC303 18x8,5" felgur, pólíhúðaðar dökkgráar, án loka (fylgja samt með en eru mjög ljót) BMW merki á felgum.
S50 flækjur (euro)
M50 Soggrein
Sérsmíðað púst frá flækjum með dtm stútum
KW 60/40 lækkunargormar og demparar (keypt nýtt og sett í bílinn sumarið 2008)
Setti einhverja fína Pioneer hátalara og spilara í bílinn árið 2008 minnir mig. USB tengi á spilaranum en þræddi nýja víra fyrir hátalara. Sándar alveg vel.
ZHP gírhnúi
Skiptiarmur úr Z3 1,8 sem virkar sem shortshifter í e36
Lip á skottloki og afturrúðu
OEM projector ljós
Svört nýru
Svo á ég X-brace útí skúr sem SMG held ég smíðaði, hef bara ekki nennt að setja það í hann. Fylgir semsagt með.

Gallar:
Þessi klassísku e36 vandamál,
Ryð í afturbretti farþegamegin, svo eru örsmáar ryðdoppur fremst á toppnum.
Í frosti eða miklum hita eru rúðurnar með leiðindi, rofinn sem á að ýta þeim í efstu stöðu er svo slitinn.
Bíllinn var eitthvað sprautaður árið 2006 eða 2007 og glæran lak smá, en lekinn er rétt hjá ryðblettinum á afturbrettinu.
Bíllinn er ekki tjónlaus
ABS og spólvarnarljósið logar, lét lesa af honum hjá Eðalbílum og þar kom upp ABS microprocessor error
Samlæsingarnar hafa alltaf verið með vesen og ég þurfti að taka mótorinn úr farþegahurðinni til að geta notað hana. Eðalbílar gátu ekki sagt til um hvað væri nkl að. Fjarstýringin virkar ekki.

Nokkrar ársgamlar myndir, bíllinn lítur eins út núna, græja nýjar myndir í vikunni.
Image
Image
Image
Image
Gömul mynd, oem loftsíubox komið í núna.

Er í rvk.

Skemmtilegur bíll sem mér þykir vænt um og langar að selja einhverjum sem að mun sinna honum.
PM
Verð: 800þús. Skoða skipti.
Last edited by BirkirB on Wed 03. Jul 2019 13:37, edited 4 times in total.
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe

Postby Lastorer » Mon 09. Jul 2012 22:47

frábær bíll í allastaði upp með hann
Lastorer
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 14
Joined: Mon 14. Dec 2009 13:39

Re: BMW e36 323i coupe

Postby BirkirB » Thu 12. Jul 2012 00:21

Smá myndahaugur, ég veit að ég ætti að vera löngu búinn að rífa þessar ógeðis filmur úr. Og felgurnar eru ekki til sölu nema með bílnum.


Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby Misdo » Thu 12. Jul 2012 07:12

Mjög smekklegur að sjá
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby ValliB » Fri 13. Jul 2012 12:48

Eigandinn hugsar vel um þennan. Hann er ekki enn búinn að setja teningana í spegilinn, en það styttist í það segir hann. Hann er með þá klára.


Svo átti Logi Geirsson bílinn :shock:
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby jonthor » Fri 13. Jul 2012 13:19

Fallegur bíll, kemur virkilega vel út á þessum felgum.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby BirkirB » Mon 30. Jul 2012 22:21

lkfbömprkrg
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby BirkirB » Fri 03. Aug 2012 12:28

Bömp, djöfull er leiðinlegt að selja bíl. Held ég kaupi mér bara aldrei aftur bíl.
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby Kristjan » Sat 04. Aug 2012 11:45

Húsavík represent, mjög fallegur bíll hjá þér.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby SUBARUWRX » Thu 16. Aug 2012 23:02

Skipti á Enduro hjóli?? Husaberg 550cc
Bmw 325i e36 '94
SUBARUWRX
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Wed 01. Oct 2003 18:47
Location: Vestmannaeyjar

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby BirkirB » Thu 16. Aug 2012 23:41

Nei takk, væri samt alveg til í hjól.
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby BirkirB » Wed 22. Aug 2012 15:04

Er í rkv núna þannig að það er hægt að skoða bílinn :argh:
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby BirkirB » Wed 12. Sep 2012 19:37

Nýjir stýrisendar, hjólastilltur, ný afturdekk, skoðaður 2013.
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby BirkirB » Sun 16. Sep 2012 15:52

Upp... :roll:
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir

Postby BirkirB » Wed 19. Sep 2012 20:48

Upp. Ég nenni ekki lengur að svara staðgreiðslukjaftæðinu...
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests