
fyrir því. Kominn tími á að dekkjaverðið á "low profile" dekkjum fari aðeins niður. Þegar ég var á höttunum eftir 205/40 ZR17 þá var ódýrustu dekkin á 20.000 kr. stykkið frá Marshall sem Hjólbarðahöllin er með (Dekkjalagerinn var bara með 50 prófíl sem kostaði reyndar 11000 en gekk ekki upp fyrir mig). Ég verslaði mér Toyo Proxes T1-S Dekk á Reifen.de og komu þau heim á undir 40 þús. Meiningin með þessum pósti er bara sú að ekki láta bjóða sér þetta okurverð á "spes" stærðum á dekkjum þegar maður getur með góðu móti útvegað sér góð dekk á glæsilegum verðum á eigin spýtur. Þetta eru mínar 2 krónur (umreiknast sem 2 cent). Users browsing this forum: No registered users and 23 guests