Þakka góð orð í garð bílsins kæru félagar, það verður án efa erfitt að kveðja hann.
Auglýsingin er kannski orðuð dálítið fýlulega en það er svona þegar maður áttar sig á því að maður er líklega að fara að selja draumabílinn sinn. Mönnum er alveg frjálst að hafa samband, í versta falli segi ég bara nei.
bErio wrote:Þig langar ekkert i M5 er það ?

Ef það væri einhver E39 M5 sem mig langaði í þá væri það líklega þinn M5 og miðað við hvað þú hefur gert við bílana þína hingað til þá værir þú akkúrat eigandinn af svona bíl. Hins vegar hef ég ekkert með M5 að gera held ég, myndi eflaust keyra hann ennþá minna en þennan bíl og hann passar ekki í bílskúrinn hjá mér
