Bremsu og bensín leiðslur í 1993 e32 750i

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bremsu og bensín leiðslur í 1993 e32 750i

Postby runarpr » Thu 21. Jun 2012 17:43

Mig vantar bremsu og bensín leiðslur undir 1993 E32. Þær leiðslur sem liggja endilangt undir bílnum frá fram til aftur enda.

Er ekki einhver snilligur hérna sem getur bent mér á hvar er best að verða sér útum þessar leiðslur.

Allar þessar leiðslur eru að vera komnar á síðasta snúning, og eflaust ekki langt í þetta byrji að leka.

Takk fyrir.
runarpr
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Thu 21. Jun 2012 17:34

Re: Bremsu og bensín leiðslur í 1993 e32 750i

Postby srr » Thu 21. Jun 2012 18:44

Þú getur fengið bremsulagnirnar í metratali hjá Stillingu, Barka o.fl.
Lætur þá útbúa eftir máli og kóna fyrir þig.
Beygir þær svo sjálfur eftir gömlu lögnunum.

Með bensínlagnirnar hafa menn verið að skipta þeim út fyrir gúmmíslöngur sem hægt er að fá í N1, Stillingu, Barka o.fl.
Einnig seldar í metratali.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: Bremsu og bensín leiðslur í 1993 e32 750i

Postby sosupabbi » Fri 22. Jun 2012 00:36

Ég myndi persónulega ekki hafa bensínslöngurnar gummí á öðrum stöðum en er oem þar sem bensínslöngurnar fara meðalannars mjög nálægt púströrinu, en það gæti sloppið með því að setja járnrör þar yfir(endakútinn).
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: Bremsu og bensín leiðslur í 1993 e32 750i

Postby BMW_Owner » Sat 23. Jun 2012 20:16

Eg er buinn ad skipta um detta i 2 bilum 750 og 730 ekki breyta dessu med dvi ad setja gummi eda plast dar sem járn var fyrir dad er ekki ad ástæðulausu sem detta er gert svona i verksmidjunni.
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 35 guests