Ég mæti sko fyrstur manna á samkomuna inná Akureyri, það er engin spurning. En hér kemur stutt saga bílsins.
Bíllinn sem um ræðir er að sjálfsögðu BMW 535ia árg 1989.
Vélin og bíllinn eru ekin 196.000 km.
Liturinn er Atlantisblau og lakkið er stórfínt.
Dekkjastærð er 235/45 að framan og 255/40 að aftan á 17" felgum.
Og svo er allt þetta helsta í honum svo sem toppl, abs, crusecontr, ac,.
Sagan segir að Íslenskur flugmaður hafið keypt hann hérlendis og flutt hann út til Finnlands þar sem hann keyrði hann einhverja 130.000km, flytur hann svo heim aftur og selur pabba mínum hann, sem á hann í 5 ár og setur í hann þjófavörn og græjur fyrir hátt í hálfa millu, pabbi minn selur svo frænda mínum hann sem á hann í 2 ár og keyrir hann auma 18.000 km og skiptir svo við mig.
Ef einhver veit meira en ég um sögu bílsins áður en faðir minn eignaðist hann þá er ég alveg til í að heyra það.

