Jæja ..Spyrnur,litlu stangirnar og fóðringar komnar í nema sporstangirnar þar sem þær voru í góðu lagi

Lækkunargormarnir einnig komnir í en eru kannski ennþá að "setjast" .. allavega ekki jafn mikil lækkun og ég bjóst við. En það er kannski bara fínt þar sem ég bý í hraðahindranagerði

Hann er að nuddast aðeins ef ég fer ekki varlega yfir þetta hraðahindranahelvíti sem er hérna í þessum bæ.
Leðrið fékk líka flotta hreinsun og umferð með leðurkremi
Airbag slip-hringurinn kemur á morgun ásamt M-design mottunum og einhverju smádóti. Svo fer ég bráðum að massa hann og samlita afturstuðarann ásamt diffuser.