E32 750 Gengur á sex

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E32 750 Gengur á sex

Postby sosupabbi » Mon 04. Jun 2012 23:07

Er með E32 750 sem gegnur bara á 6 strokkum(bílstjóramegin), það eru ný kerti í mótornum, allt rétt tengt, gekk vel áður en ég fór að skipta um kerti og mála soggreinar og þessháttar, EML ljósið kemur á eftir að maður er buinn að keyra smá eða setja smá álag á hann, ekki um leið og maður startar, svo kom spólvarnarljósið á í fyrradag líka, gat ekki slökkt á því með takkanum.

Það er bensínþrýstingur á railinu, og þegar ég startaði honum kertalausum kom bensín útum kertagötin, hann fær neista, og ég lét liggja smá ssk olíu í strokkonum(farþegamegin) sem ég saug svo upp áður en ég setti í gang aftur og lét hann ganga hratt í 3min, áður en ég gerði þetta skoðaði ég kertin og þau voru mjög svört(farþegamegin) en enþá eins og ný bílstjóramegin enda bara ekinn 30km. Allar uppástungur vel þegnar :thup: (ég pússaði kertin aðeins áður en ég setti þau aftur í)
mbk. Markús
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: E32 750 Gengur á sex

Postby sosupabbi » Tue 05. Jun 2012 22:48

Annað árið í röð nær maður að klikka á þessu, pulse skynjarinn á kertaþræðinum var vitlaust tengdur en þetta er svo fyndið að hann tengist í brúnt tengi farþegamegin en svart bílstjóramegin(eru 4 plögg allt í allt, 2 sitthvorumegin þaes eitt svart og eitt brúnt) mega heimskuleg uppsetning.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests