by íbbi_ » Wed 09. May 2012 23:23
ég get nú reyndar ekki sagt að þeir E38 750 bílar sem ég hef haft einhver kynni af hafi verið eitthvað frekar til vandræða en aðrir E38 almennt,
ég man vel eftir ógurlegu brasi með marga E32 750, gengu á 6cyl og aldrei í lagi. ég man eftir einum 750 E38 sem var stöðugt mótorvandamál, skoðaði hann með kaup í huga á flr en einum eiganda og alltaf var sama mótorvesenið að hrjá hanb, held að dannii hafi átt hann og viktor eigi hann nú.
aðrir 750 E38 sem ég hef þekkt til hafa meira verið með ónýtar skiptingar og slitinn hjólastell, sem er nú meira E38 thing en 750 thing,
en svo er reyndar annað mál að ég hef ekki mikla reynslu af E38 750, og hefur ekki fundist mikið af þeim bílum í umferð yfirhöfuð. og mín reynsla af þeim eingöngu af bílum sem vinir og kunningjar hafa átt. og yfirleitt sömu bílarnir hjá mörgum eigendum.
það má nú ekki vanmeta m60/m62 hvað varðar kostnað, þetta eru yndislegir mótorar, einhevrjir þeir bestu sem ég hef haft í bíl bæði 3.0l 4.0l og 4.4l, en viðhald á þeim getur alveg verið súr pakki þegar að því kemur.
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll