BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby Jónki 320i ´84 » Mon 16. Apr 2012 13:34

Þá er komið að því, ég hef verið að hugsa þetta í langan tíma og er búinn að taka ákvörðun um að setja bílinn á sölu og er hann því falur.

Bíllinn sem um ræðir er BMW e30 325i ´90 M-TechnikII 4door.

Bílnr: NI-564

Delphin Metallic (184)

Bíllinn kemur af færibandinu þann 05.02.1990.

Hann þeysti um götur og hraðbrautir heimalandsins þangað til 2005 og er hann skráður hér á landi þann 03.06.2005.
Það var Smári Hamburg sem flutti bílinn inn fyrir mig og hafði hann orð á því að þetta væri besti e30 sem hann hafði nokkurn tímann keyrt og hefur hann keyrt þá þónokkra.
Ég er fjórði eigandi af bílnum, eða í raun sá þriðji því fyrsti eigandi er fyrirtæki og hafði forstjórinn hann til umráða og svo þegar hann hættir þá fékk hann bílinn til eignar. Sá er fæddur 1930. Hann selur síðan bílinn til þess sem ég keypti hann af og ætlaði sá að nota hann sem leiktæki, var búinn að lækka hann, setja strutbrace að framan og aðrar felgur, en hann hafði aldrei tíma til þess að leika sér á honum og ákvað því að selja hann.
Þegar bíllinn kemur heim þá er hann keyrður 166.800km.

Eitt það fyrsta sem ég gerði var að kaupa original M-TechnikII kitt frá þýskalandi og þegar það var komið í mínar hendur þá tók við heilmálun sem fór fram í ágúst 2005. Eins og margir hérna vita að þá er ég með fullkomnunaráráttu og er ég búinn að vera að betrumbæta margt í gegnum tíðina. Það er búið að mála flest allt á bílnum einu sinni eða oftar eftir heilmálunina, það eina sem ekki er búið að mála aftur eru hurðar, þak og skottlok.
Á bílnum er glænýtt original húdd($$$$$) sem var málað og sett á sumarið 2010, einnig er glæný original framsvunta ($$$$$) sem var máluð og sett á sumarið 2009.
Bíllinn er keyrður í dag 201.xxx km en hefur verið keyrður mjög lítið síðustu þrjú sumur, aðeins á góðviðrisdögum og tyllidögum.
Bíllinn fór í hjólastillingu hjá Birni B. Steffensen 03.04.2006 þá keyrður 175.384km

En jæja þá skulum við kíkja á fæðingarvottorðið:
Vehicle information
VIN long : WBAAD11040AF51667
Type code: AD11
Type: 325i (EUR)
Dev. Series: E30()
Line: 3
Body Type: LIM
Steering: RL
Door count: 4
Engine: M20
Cubical capacity: 2.50
Power: 125 kw
Transmission: HECK
Gearbox: MECH
Colour: DELPHIN METALLIC (184)
Upholstery: ANTHRAZIT STOFF (0269)
Prod. Date: 1990-02-05
Order options
215: POWER STEERING DEPENDING ON ENGINE SPEED
320: MODEL DESIGNATION, DELETION
339: SATIN CHROME
350: WAERMESCHUTZGLAS GRUEN, RUNDUM
400: SLIDING SUNROOF MANUAL
428: WARNING TRIANGLE
510: HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM
556: EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY
652: BMW BAVARIA C II
680: MANUAL AERIAL
704: M SPORT SUSPENSION
708: M-SPORT LEATHER STEERING WHEEL II
801: GERMANY VERSION

Það sem er nýtt eða nýlegt er:
Nýlegir Bremsuklossar + þreifarar framan og aftan (original)
Tímareim, vatnsdæla og strekkjari (Bosch) skipt um í að mig minnir 190.xxxkm
Nýjar pakkdósir aftan á gírkassa (original)
Ný olía á gírkassa
Ný pönnupakkning á vél (original)
Nýleg olía og sía á vél (original sía)
Ný olía á drifi
Ný sveif fyrir topplúgu (original)
Nýleg kerti (Bosch 4ja póla)
Nýjir mótorpúðar (original)
Ný bensíndæla ( Tækniþjónusta bifreiða seldi mér hana því hún var ekki til original)
Nýtt útvarpsloftnet (original)
Nýr þéttikantur á skotti og einnig nýjir á afturljósum (original)
Nýjir ljósabotnar á afturljósum (original)


Það sem er búið að breyta í bílnum er:
Fjöðrun: Spax með lækkun 70/50mm
Strutbrace að framan sem er búið að mála í sama lit og bíllinn.
Vél: K&N drop in sía, hvarfakútur fjarlægður og túbur setta í staðinn, Gpower endakútur á pústi ($$$$$), aðrir krómpúststútar á endakút OO, sem fylla betur útí gatið á svuntunni.
Drifrás: Læst drif ( kom úr gráa 2door m-tech bílnum sem tjónaðist)
Útlit:
Full M-TechnikII kitt ($$$$$)
Smokuð Hella framljós (Original Hella, sérpantað hjá N1 $$$$$)
Xenon aðaljós
Filmaður allan hringinn
Borbet T felgur 16*9“ með póleruðum kanti og miðjur málaðar í sama lit og bílinn.
Búið er að setja króm mælaborðshringi og rauðar nálar.
M-Technik gírhnúður með ljósi (original)
BMW sportsæti úr BS-187 sem þyrfti að skipta um áklæði á
Höfuðpúðar á aftursætum
Taumottur á gólfum (original)
Klæðning innan á skottloki sett í og máluð svört (kom bara í special edition bílunum held ég)
Gardína í afturhillu
Dekk: Kumho Ecsta 215/40/16
Hljóðkerfi: Í bílnum er pioneer geilsaspilari og pioneer hátalarar í afturhillu, orginal hátalarar frammí.
Þjófavörn: Viper þjófavörn með fjarstarti sem er virkt http://www.drdetailshop.com/V791XV.htm
Þetta er kerfið

Bíllinn er skoðaður án athugasemda 2012 en númerin liggja inni núna í geymslu.

Það er ábyggilega eitthvað sem ég er að gleyma svo það er bara um að gera að spyrja.
Þessi bíll er búinn að vera gullmolinn minn síðan 2005 og langar mig ekkert til þess að selja hann, en vegna breyttra fjölskylduaðstæðna þá hef ég tekið þá ákvörðun að selja hann ef rétt verð fæst.
Verðið er 1.500.000
Ég veit að það er í hærri kantinum en hann er ekki til sölu fyrir eitthvað klink, en ég skoða öll tilboð og skipti, en það þarf alltaf að vera peningur í milligjöf.
Eins fer þessi bíll ekki til bara einhvers, ég áskil mér rétt til þess að neyta mönnum ef mér lýst ekki á þá eða þeirra hugmyndir. Þessi bíll fer aðeins í góðar hendur!!!!
Ég nenni ekki að vera að sýna mönnum bílinn sem hafa ekki alvöru áhuga þar sem hann er í geymslu annarsstaðar en heima hjá mér þannig að ég nenni ekki neinum dekkjaspörkurum!!

Þetta er gamli bílar meðlima þráðurinn:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=10746

Kv. Jón Knútur
jonki@edalbilar.is
s: 697-9021

myndir:
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
Image
User avatar
Jónki 320i ´84
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1494
Joined: Sun 08. Jun 2003 03:11
Location: Reykjavík

Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby Nonni325 » Mon 16. Apr 2012 14:03

Bara nettur og eigulegur E30! :thup:
Væri alveg til að eiga smá pening núna :)
BMW 325 E30: Seldur
BMW 730 E32: Seldur
BMW 325 E36 blæju: Seldur
BMW 318 E46: Seldur
Bmw 540 E39: Seldur
Subaru legacy: Í notkun
Husaberg FS 650 Supermoto: Í notkun
User avatar
Nonni325
Getawaybílstjóri
 
Posts: 562
Joined: Mon 21. Jul 2008 22:41
Location: Keflavík

Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby Steinieini » Mon 16. Apr 2012 19:45

flott spoílerkítt

hvað er hann að eyða ?
E39 530D ///M Sport
User avatar
Steinieini
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1905
Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Location: RVK

Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby Jökull » Mon 16. Apr 2012 21:30

Þessi er vægast sagt... Geðveikt flottur 8)
BMW 325XI E46 '02
BMW X5 E53 '02
User avatar
Jökull
Getawaybílstjóri
 
Posts: 965
Joined: Wed 11. Jun 2003 12:33

Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby Bandit79 » Tue 17. Apr 2012 09:18

Flottur þessi og vönduð auglýsing! :thup:
BMW E34 525i Sedan 1991 *LSD*
BMW E36 320i Touring 1995 .. seldur
BMW E34 520i Touring 1994 .. seldur
BMW E36 320i 1997 Seldur .. í partamat í DK
BMW E39 525D Touring 2003 seldur ... snilldar tæki
BMW E34 525i 1992 seldur með mikilli eftirsjá
User avatar
Bandit79
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1064
Joined: Thu 12. May 2005 12:34
Location: Selfoss/Hveró

Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby IcelandicPsycho » Thu 19. Apr 2012 15:32

hands down flottasti e30 landsins, og hreinlega bara einn af flottustu sem ég hef séð, gangi þér vel með söluna gamli
BMW e36 323 [HA-868] (seldur)
BMW e39 528 [UR-700] (seldur)
BMW e30 320 [KS-443] (seldur)
BMW e36 318 [UY-654] (seldur)
BMW e34 525 [BE-420]
BMW e34 525ix [OO-116]
User avatar
IcelandicPsycho
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 48
Joined: Fri 18. Feb 2011 18:29

Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby Jónki 320i ´84 » Mon 23. Apr 2012 14:24

Takk fyrir commentin :wink:

Ég gleymdi að taka það fram að hlutfallið í læsta drifinu er 3.73
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
Image
User avatar
Jónki 320i ´84
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1494
Joined: Sun 08. Jun 2003 03:11
Location: Reykjavík

Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II

Postby Jónki 320i ´84 » Sun 06. May 2012 10:39

Það kom að því, bíllinn er seldur.....
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
Image
User avatar
Jónki 320i ´84
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1494
Joined: Sun 08. Jun 2003 03:11
Location: Reykjavík


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 37 guests