Jæja, smá update
Búinn að Eiga þennan bíl í rúm 4 ár núna og er hann keyrður í dag um 70.000km
Ég er sumsé búinn að rúlla um 50.000km inná hann.
Myndir frá því....




Við erum búnir að ganga í gegnum ýmislegt saman á þessum tíma!
Klessti hann mjög lítillega að framan, og er hann því með nýlega málaðan framenda, og lýtur ennþá út sem nýr í dag!
Kominn á Style 50 felgur (á enga mynd, þið vitið líka alveg hvernig silfraður E39 á style 50 lýtur út, nóg til af þeim

)
En leiðinlegt lán + engin vinna + Rekstur á BMW gefur ekki góða niðurstöðu, þannig að í desember 2010 lagði ég bílnum, í stað þess að drepa hann með því að keyra hann án þess að sinna viðhaldi sem kominn var tími á.
Um leið og ég var kominn með vinnu og gat farið að setja bílinn aftur á götuna, þá breyttust fjölskylduaðstæður mjög hratt svo þessi varð að bíða betri tíma.
Lét svo útbúa nýjar nr plötur á hann og trekkti hann í gang í byrjun Apríl 2012.
Bílnum var svo trillað uppí Eðalbíla þar sem við Davíð (Slapi) snýttum bílnum einn sunnudaginn.
Það var komið slag í 2 spindilkúlur og 2 jafnvægisstangartengi, þannig að ég pantaði í hann allar 4 spindilstífurnar að framan, og öll 4 jafnvægisstangartengin. (svona rúlla ég bara)
Allir diskar og klossar höfðu verið ný þegar bílnum var lagt, svo að ég tók alla diskana og lét renna þá, því að það hafði sest vel af ryði á þá.
Þvínæst var bíllinn hjólastilltur, og keypt undir hann splunkuný dekk 225/55/16 Sailun frá Dekkverk, og eru þau dekk að koma mér virkilega jákvætt á óvart
Bílllinn var alltaf að drepa á sér og kom í ljós að inntakshosan var rifin.
Keypti hana nýja og henti henni í (Team OEM)
Á sunnudaginn var, fór bíllinn svo í allsherjar verkfall og vildi bara ekki fara í gang,

bensíndælan kapút
Keypti nýja BOSCH bensíndælu í hann í gær, og í gærkvöldi sparkaði ég í tankinn á honum, og brokkaði hann þá í gang, Notaði tækifærið og brunaði niðurí vinnu og skipti um dæluna í gærkvöldi.
Einnig er knastásskynjarinn fyrir inntaksás bilaður og er bíllinn því með Vtech effect, togar ekki nóg á low rpm´s.
búinn að kaupa hann nýjan og set hann í bílinn í kvöld líklega.
Bíllinn er skoðaður út árið 2013 í raun (0 í endastaf)
En bíllinn fékk sína fyrstu athugasemd í skoðun á ferlinum núna í apríl.
-öryggisþríhyrningur-
Hann var hjá varadekkinu en skottið var fullt af dóti vegna flutninga

Eins og áður sagði er ég búinn að keyra hann 50.000km
Og hver km er bara ánægjulegri en sá á undan, algjörlega elska þennan bíl!!!!
Dettur hreinlega ekki í hug betri all over bíll! Fer vel um fjölskylduna í rólegheita akstri, algjör draumur úti á vegum,
og alveg hægt að leika sér með þessi 230 hö þegar ég er einn.
Bíllinn er náttúrulega ótrúlega heill, vegna lítils aksturs og góðs viðhalds, og maður hreinlega hugleiðir það hvort maður eigi bara að eiga hann alltaf, keyra hann út bara!
Hef hugleitt það mikið að selja hann, en fæ mig barasta ekki til þess með góðu

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,