Vandamál með hjólabúnað í E39

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vandamál með hjólabúnað í E39

Postby Manace » Sun 29. Apr 2012 14:50

Góðan og blessaðan.

Í vetur rann ég á kant með hægra afturhjólið eftir að hafa snúið bílnum í hálku (20-35 km/h). Eftir þetta fór bíllinn að rása óvenjulega mikið og þá var undirvagninn skoðaður. Í ljós kom að margar fóðringar voru komnar á tíma í afturhjólunum og því var skipt út. Bíllinn var eins og nýr í keyrslu eftir þetta og fór beint í hjólastillingu eftir það. Hjólastillingarmaðurinn gat ekki stillt hægra afturhjólið rétt (Hjólastillingar ehf). Hjólið varð eftir 12 mm skakkt. Hann sagði mér að prufa að skipta um hjóla-navið án þess að vera viss um að það væri málið. Hann gat ekki séð hvað var skakkt.

Eftir þetta fór ég á 2 önnur verkstæði og nokkrir menn lytu undir bílinn hjá mér og enginn gat séð hvað var skakkt.
Bíllinn sleit hvorki hægra afturhjóli né vinstra í langan tíma og fór ég að hugsa með mér hvort að eitthvað væri að yfir höfuð...
Svo kom það í ljós að síðan að það fór að hlýna er hann búinn að slíta VINSTRA afturhjólinu svona helvíti hressilega á innri kantinum.

Ef það er eitthver sem vill mynda sér skoðun á þessu þá voru það fóðringar 2 og 4 á þessari mynd sem var skipt um.
http://realoem.com/bmw/showparts.do?mod ... g=33&fg=30

Svo ég spyr. Er einhver hér sem hefur lent í einhverju svipuðu og þið viskubrunnar hvort þið séuð með einhverjar ráðleggingar um hvað ætti að skipta um.

Með fyrirfram þökk drengir!
BMW 523 E39
Manace
Kassabílstjóri
 
Posts: 157
Joined: Mon 12. Apr 2010 23:15

Re: Vandamál með hjólabúnað í E39

Postby crashed » Sun 29. Apr 2012 19:19

stífurnar no 14 og 18 gætu verið lélegar eða ónítar og svo einig festingarnar fyrir þær gætu hafa bognað sem eru við bílinn sjálfann, það er bara örðunt járn sem festir þetta, enn að nafið sé skagt fynst mér vera ólíklegt, enn svo getur verið að demparinn hafi skadast eithvað, hugsanlega gúmíið sem er neðst á honum þar sem hann festist við nafið.
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Re: Vandamál með hjólabúnað í E39

Postby slapi » Sun 29. Apr 2012 21:02

Demparinn hefur engin áhrif á hjólastillinguna.:roll:
Farðu bara með hann á alvöru réttingarverkstæði og fáðu þetta á hreint.
Venjulega er það kúlan niðri sem gefur sig.
Þ.e nr 2 annars er bitinn viðkvæmur fyrir þessu.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Vandamál með hjólabúnað í E39

Postby crashed » Sun 29. Apr 2012 23:25

slapi wrote:Demparinn hefur engin áhrif á hjólastillinguna.:roll:
Farðu bara með hann á alvöru réttingarverkstæði og fáðu þetta á hreint.
Venjulega er það kúlan niðri sem gefur sig.
Þ.e nr 2 annars er bitinn viðkvæmur fyrir þessu.

vinur ef dempara festingin er boginn semsagt boltin eða gúmíið í gatinu ónít að þá hefur það veruleg áhrif á hjóla stillingu í þessum bílum, ætti nú að vita það sjálfur þar sem ég hef lent í því að missa bíl á kant og keng beiga þetta og dekkið var útúr kortinu við það en lagaðist við nýjan dempara
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Re: Vandamál með hjólabúnað í E39

Postby slapi » Mon 30. Apr 2012 07:37

Því miður er þetta rangt hjá þér. Í þeim tilvikum sem dempari getur haft áhrif á hjólastillingu að aftan líkt og McPherSon þá eru tveir boltar og festingin frekar veigamikil.
Í þessu og eiginlega öllum BMW er festingin frekar veigalítil og eins og þú segir með fóðringu að neðan ,og ef að demparinn hefði einhver áhrif myndu allir bílarnir verða hjólaskakkir því fóðringin er það lítil og álagið á hana væri þannig að hún myndi vilja keyra sig útur demparanum.
Vissulega getur verið að þú hafir beygt dempara en það er að því að þú hefur beygt/brotið eitthvað annað því það eru tvær efri spyrnur og ein stór neðrispyrna með fræðilegum tveimur tengipunktum og demparinn festist í mitt nafin á milli spyrnanna þannig að hann hefur ekkert vogarafl á nafið til að getað valdið áhrif á hjólastillingu.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 43 guests