Vélin er loksins komin ofan í blæjuna nema það að hún á við vandamál að stríða.
Hún fór í gang í fyrsta starti eftir að hún fór ofan í og gekk eðlilegan hægagang svo keyrði ég bílinn út, snéri honum við þannig að eingöngu framendinn væri innandyra. Eftir það gaf ég bílnum inn og hann kokaði við inngjöf og drap á sér næst eftir að ég gaf vélinni inn þegar hún var á leiðinni niður af snúning. Vélin var komin í 3/4 vinnsluhita og var vélin búin að hitna eðlilega. Eftir þetta þurfti ég að gefa bílnum inn til að fá vélina í gang og gekk hún ekki hægagang en gekk vel á snúning án athugasemda og þegar hún var komin í ca. 1200sn. þá drap hún á sér og varð sífelt erfiðara að koma vélinni í gang þar til að hún fór ekki í gang. Prufað var að taka súrefnisskynjarann, ICV, TPS og MAF úr sambandi en það breytti engu. Motoroil ljósið í Check controlinu logaði stöðugt og það rauk vel úr vélinni þegar opnað var olíuáfyllingarlokið og dipstickið var tekið úr en ekkert athugavert við olíu né kælivökva annað en það að það á enn eftir að klára að lofttæma og bæta kælivökva á kælikerfið.
Ég skipti um tímareim, strekkjarahjól, gorm, stýripinna og tví og þríathugaði tíman á vélinni og handsnéri henni fjóra hringi án vandræða eftir tímareimaskipti.
Ég skipti líka um einn brunninn vír í motorloominu en það var jörðin fyrir olíuhæðarrofan.
Er einhver sem veit eða dettur í hug hvað gæti verið að angra kvikindið??




