smá spurning um verð á bílum

Hér skal spjalla um BMW.

Postby bjahja » Tue 11. May 2004 16:06

BMW3 wrote:ég er nú buinn að vera að skoða 323 og 320 og þeir eru nú bara nákvæmlega eins nema það að að er stærri vel
Svo hef ég ekki tekið eftir því að það sé mikill verðmunur á þessum bílum það hefur kanski munað 100-150 þúsund.

Já, en HANN ER MEÐ STÆRRI VÉL ;)
Það munar SLATTA á aflinu á 320 og 323
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Haffi » Tue 11. May 2004 16:32

svo er hann í öðrum tollflokki :roll: munar SLATTA á innflutningsverði
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Leikmaður » Tue 11. May 2004 16:39

Haffi wrote:svo er hann í öðrum tollflokki :roll: munar SLATTA á innflutningsverði


Bíddu er 2000 og 2500 ekki í nákvæmlega sama tollflokki, þegar bíllinn er með 2,0 eða stærri??
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby Haffi » Tue 11. May 2004 16:53

nei 2000 fellur í minni flokkinn.. ?
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Leikmaður » Tue 11. May 2004 17:23

Haffi wrote:nei 2000 fellur í minni flokkinn.. ?


Djöfulsins blekkingu hefur maður þá lifað í, í gegnum árin :roll:
Ég get svo svarið það, ég var alveg pottþéttur á að tveggja lítra vélin teldist til 45% flokksins
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby iar » Tue 11. May 2004 19:41

Leikmaður wrote:
Haffi wrote:nei 2000 fellur í minni flokkinn.. ?


Djöfulsins blekkingu hefur maður þá lifað í, í gegnum árin :roll:
Ég get svo svarið það, ég var alveg pottþéttur á að tveggja lítra vélin teldist til 45% flokksins


320i er með rétt tæplega 2L vél (1991cc samkvæmt parkers.co.uk). Þannig smellur hann inn í lægri tollflokkinn. ;-)
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby BMW3 » Tue 11. May 2004 19:48

ég hélt líka að það væri flokkað í stærri tollflokkinn en hvernig er það þá með bifreiðagjöldinn hvað er mikill verðmunur á þessum tveim bílum 320 og 323
Hell was full so i came back!
BMW3
Bannaður
 
Posts: 526
Joined: Mon 15. Sep 2003 16:31
Location: Reykjavík

Postby iar » Tue 11. May 2004 19:56

http://www.tollur.is/tollur/handbok/han ... uger10.htm

0 - 2.000 fer í 30%
2.000 og yfir fer í 45%

Þannig að það er engin ástæða að setja 320i bíla í 45%

http://www.tollur.is/tollur/handbok/han ... luge13.htm

3. gr. wrote:Bifreiðagjald á hverju gjaldtímabili er 6,00 kr. fyrir hvert kg af eigin þyngd bifreiðar allt að 1.000 kg, 8,10 kr. fyrir hvert kg af eigin þyngd bifreiðar umfram það að 3.000 kg, en 2.000 kr. af hverju byrjuðu tonni af eigin þyngd bifreiðar umfram það. Þó skal gjaldið ekki vera lægra en 3.000 kr. og ekki hærra en 36.200 kr. á hverju gjaldtímabili.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby BMW3 » Tue 11. May 2004 19:58

oki ég þakka þér fyrir þessar upplýsingar
Hell was full so i came back!
BMW3
Bannaður
 
Posts: 526
Joined: Mon 15. Sep 2003 16:31
Location: Reykjavík

Postby jonthor » Wed 12. May 2004 07:53

bjahja wrote:
BMW3 wrote:ég er nú buinn að vera að skoða 323 og 320 og þeir eru nú bara nákvæmlega eins nema það að að er stærri vel
Svo hef ég ekki tekið eftir því að það sé mikill verðmunur á þessum bílum það hefur kanski munað 100-150 þúsund.

Já, en HANN ER MEÐ STÆRRI VÉL ;)
Það munar SLATTA á aflinu á 320 og 323


Hringdu bara í B&L eða athugaðu á bgs.is þá kemstu að því að það á að muna rétt tæpum 250k á '97 320i og 323i. Það er mjög mikill munur á vélunum í þessum bílum. Miklu meira stökk úr 320 í 323 heldur en úr 323 í 328 (Ekki láta nafngiftirnar blekkja þig)

Hér er áhugaverð lesning um muninn á 320, 323, 325 og 328:

http://www.dsv.su.se/~mad/power.html
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby iar » Wed 12. May 2004 09:46

jonthor wrote:Hringdu bara í B&L eða athugaðu á bgs.is þá kemstu að því að það á að muna rétt tæpum 250k á '97 320i og 323i. Það er mjög mikill munur á vélunum í þessum bílum. Miklu meira stökk úr 320 í 323 heldur en úr 323 í 328 (Ekki láta nafngiftirnar blekkja þig)

Hér er áhugaverð lesning um muninn á 320, 323, 325 og 328:

http://www.dsv.su.se/~mad/power.html


Fín samantekt á þessari síðu og sýnir að 323i er eina vitið. :-" ;-)

Annars þegar ég keypti E46 318i á sínum tíma þá fannst mér einmitt munurinn á 318i og 320i ekki það mikið að það borgaði sig (fleirihundruðoghellingurþúsund). Það var vissulega aflmunur ! en ekki nógu mikill að mínu mati. Ætli það hafi ekki verið þetta sem ég var að finna:

Af vefsíðunni wrote:But as a very rough rule of thumb, a mid-sized car (like Audi A4, VW Passat, or BMW 3-series) "comes alive" above 160-170 hp and 200-220 Nm.


En auðvitað varðandi búnað, innréttingu, útlit o.þ.h. er lítill sem enginn munur á 320i - 328i. Eitthvað smáræði í staðalbúnaði en 320i bíll gæti alveg eins hafa verði keyptur með fullt af aukabúnaði svo þannig litið á málið eru þeir eins. Þetta er aflið sem er munurinn, lítið annað.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests