Jæjja eitthvað aðeins búið að gerast.
Lagaði olíuleka sem var á olíu húsinu utan á blokkini.

Húddið er alltaf opið á Turbo BMW svipurinn.

Svo keyptum við 3 félagarnir hitahlíf yfir túrbínuna hjá okkur.
Á eftir að prófa þetta en þetta lokkar allvegana mjög vel.
Flottara en þessi ljóta hitaplata sem ég gerði í flýti.

Svo er ég núna að búa til betri og fallegri mótor arma í bílinn.
Hinir fóru svolítið mikið í taugarnar á mér en ég hafði ekkert betra við hendina þegar ég setti mótorinn ofaní á sínum tíma.
Hér sjáum við mynd af hægri löppini. Á eftir að mála hana og gera fína.
Ég ætla bjóða svo uppá lappir fyrir e30 með m50-s50 og m20 mótorpúða.
Mun sterkari en e36 lappir og mikið betri staðsetning á vélinni.
e30 m50-s50 swap bílar sem eru með e36 mótor lappir eru með mótorinn mjög framarlega og eiga helling inni á að koma vélinni aftar í vélarsalin.
Þá skapast pláss fyrir t.d. stærri vantskassa og viftuspaða.

Svo er á leiðinni svakalegur pakki í þennan sem kemur von bráðar.
