Sælir,
Ég er að velta fyrir mér hvort að framgormarnir sem komu úr E32 750i Hamar bílnum sem ég reif, passi í E32 740i V8 bíl ?
750i bíllinn var með EDC og ASC og mér skilst að 740i bíllinn sé með hvorugt.
Einnig eru Alpina númer á 750i gormunum mínum og stemmir það við "Fahrzeugbrief" sem fylgdi honum þar stendur orðrétt:
"Zu Ziff, 13H, Mit
G.Fahrwerksfed, Alpina, Farbe Schwarz, Kennz VA 3133610, HA 3353619"
Og númerin 3133610 eru einmitt á framgormunum.
Sem gefur til kynna að þetta eru ekki oem 750i gormar.
Ætti þetta að passa í 740i ?
Hérna er mynd af Alpina númerinu:
