Manifold flangsarnir eru á leiðinni(10mm ryðfrítt), ég lét búa til 7 stykki (þökk til Cambridge University fyrir vinnuna

)
Á leiðinni er líka spes Borg Warner V-band flangsar og nýju túrbínu húsin.
Keypti svo auka m50 vél. með henni fylgir svo auka hedd sem er sprungið enn hefur knastásanna og ventla og svoleiðis + ZF gírkassa fyrir 325i/525i M50 bíla
og einnig einhvern svaðalegann afgangs kassa af pörtum. Nóg til af þessu M50 dóti hérna á réttu verði.
Um leið og M3 vélin er komin úr (í kvöld) blæjunni og ég er búinn að tjúna nokkra bíla (um helgina) þá get ég farið af stað í rebuild á vélunum og gert inventory á hvaða parta ég á, hvað vantar og svoleiðis. þetta er orðið soldið mikið af pörtum eins og er og vantar að greiða úr og sjá hverju má henda(e30 og m20 dót).
VEMS M50 PnP prentplöturnar eru líka komnar og ég mun setja samann eina tölvu sem fyrst og hengja hana í loom og testa allt samann og setja upp basemappið.