IceDev wrote:
Rólegir, bleikir. Ég hef bara verið kurteis í svörum mínum við Emil.
Ég sé nú engar bakuppádrullanir hjá mér með því að hafa mismunandi skoðanir en hann varðandi breytingar. Rétt eins og að hann hafi mismunandi skoðanir en ég.
Auðvitað gerir svo Emil það sem honum langar til að gera, enda hans bíll.
Það er furðulegt ef maður getur ekki viðrað skoðanir sínar á spjallborði ef maður gerir það með kurteisi og photoshops til að benda góðfúslega á aðra möguleika.
Enginn að segja að þú værir eitthvað annað en kurteis.
Finnst bara pínu kjánalegt þegar einhver vill breyta bílnum sínum að hann þurfa að hlusta á það að það sé röng ákvörðun af því að ""þér"" finnst eitthvað annað flottara.....
Það að pósta nokkrum sinnum og koma með nokkur PS í bílar meðlima þráðinn með uppástungur um það hvað hann eigi frekar að gera við bílinn
sinn finnst mér bara skrýtið. Af hverju skiptir þetta þig svona miklu máli?

Ps. persónulega er mér alveg sama hvað verður gert við þennan bíl og er ekkert að reyna vera leiðinlegur við þig Óskar. Sá bara að pósturinn þinn hefði verið reportaður og ákvað þá að fara skoða þetta
