íbbi_ wrote:
en kertafleyting á læti finnst mér orka tvímælis.. og jú það eru dýr alin og drepin í búum við hrikalegar aðstæður sem fólki er nákvæmlega sama um, það er alltaf að koma betur og betur í ljós að "skynlaus skeppna" finnst varla
Fólk er drepið daglega út um allan heim, oft í skipulögðum fjöldamorðum stjórnvalda og okkur er "alveg sama". Ótal börn eru einnig gjörsamlega að drepast úr hungri nú þegar þú lest þetta, samt höldum við áfram að kaupa ljós og felgur á bílana okkar sem kosta meira en ársbyrgðir af mat fyrir þau. Aftur, okkur er "alveg sama".
Ef okkur er svona "sama" um þessi börn þarna úti sem svelta, ættum við þá ekki að hneykslast ef eitthvað barn nær okkur er drepið?
Eigum við að þegja og hætta að láta eitthvað hafa áhrif á okkur bara afþví að það er daglegt brauð annarstaðar undir öðrum kringumstæðum? Nei, það er alveg hægt að hneyklast yfir einu atviki sérstaklega án þess að þurfa að telja upp allt annað sambærilegt. Og það er alveg fullt af fólki sem hneykslast t.d. yfir kjúklingabúunum, og borgar extra fyrir brúnu eggin, svo ég taki dæmi.