Sælir,
í gærkvöldi lagði égbílnum mínum í bílastæðið eftir að hafa verið að rúnta á E36-inum mínum(e36 316 92árgerð) og svo þegar ég vakna morgunin eftir og ætla að kveikja á bílnum og stíg á kúplinguna fer hún alla leið niður eins og hún bara gefi sig og detti niður og ég get auðvitað ekki sett í gír. Kúplingin kemur strax upp aftur en ekkert gerist.
Einhver með hugmyndir hvað gæti verið að og veit einhver hvar ég gæti látið kíkja á þetta eða hver gæti kíkt á þetta fyrir mig gegn vægu gjaldi ?

kv, Aron
_________________
BMW E36 323i 1996 [LX-562]
-------Seldir------
BMW E36 325i 1991 [ZL-501] Kókó
BMW E36 320i 1996 [LX-562] Seldur eeeeen keyptur aftur

BMW E36 320i 1997 [VF-589] Fór í köku því miður
BMW E36 316i 1992 [ZY-749] Haugur sem ég sé ekkert eftir..