ég vona að það sleppi að ég hendi inn einni spurningu ótengdri bmw,
var að skipta um tímareim í nýlegum vw, setti bílin á merki á sveif/kamb og reyndar athugaði það sérstaklega eftir að reimin var kominn á að merkin hefðu haldist, þar sem að það vildi ske að maður færði sveifarástannhjólið örlítið af merkinu við að ná reimini almennilega upp á tímahjólið,
svo þegar ég var búinn að setja saman aftur og startaði, þá gékk bíllinn frekar illa hægagang og kveikti öll aðvörunarljós, check engine, airbag, asr og flr, lét hann ganga til að ná fullum hita og alltaf gékk hann eins, eins og hann væri rangur um eina tönn eða svo, kíkti á merkin aftur og gat ekki betur séð en að það væri ekkert athugavert þar. prufaði þá að keyra einn hring á bílnum og þegar ég kom til baka þá gékk bíllinn óaðfinnanlega og hefur gert síðan þá. og aðvörunarljósn byrjuðu að slökkna,
er þetta venjan með þessa bíla? mig var jafnvel að gruna að það hafi komið villukóðar þar sem ég þurfti að nota startarann til að losa rónna af dampernum
_________________ M.benz E320 Family Wagon Chevrolet Silverado vinnujálkur Chevrolet Silverado skúrajálkur Cadillac eldorado 1973, ísbíll
|