iar wrote:
Heyr heyr, ég var einmitt frekar hissa að sjá þessar staðhæfingar að L2C væri eitthvað illa séð af BMWKrafti. Eins og gstuning nefnir þá eru allir bílaklúbbar bara af hinu góða og gætu í sameiningu eflt góða bíla- og umferðamenningu hér á klakanum.
Vissulega eru þessir tveir klúbbar greinilega mjög ólíkir, hér virðist fólk vera minna fyrir límmiða og púst og L2C minna fyrir svona stock-fanatíkur eins og við eigum til að vera.

Bara gaman.

Kommon, BMWKraftur er líka áhugamannaklúbbur um eina tegund bifreiða, það er ákveðin bilun!

Spurning kannski að efla samstarf klúbbana eitthvað með sameiginlegum hittingum og jafnvel uppákomum...
Já það er ekki léleg hugmynd,
mér hafði dottið það í hug fyrir einhverju síðan, en eins og ég segi,
þá hef ég orðið vitni að frekar óskemmtilegum commentum og
harkalegum umræðum á frekar lélegum nótum um þennann klúbb,
en eins og þið segið þá er það bara staðreind að við erum fjölbreittur klúbbur, og það er bara ekkert að því. Hann gengur ekki útá rice-rockets eins og margir vilja halda, það eru nú bara alveg örfáir sem geta flokkast undir rice þarna. En við erum mjög lífleg og margt að gerast hjá okkur,
og ég spyr nú bara fyrir forvitnissakir,
viljið þið ekki bara slá þessu upp í kæruleisi og koma samferða okkur til akureyrar þann 16 júní? could be fun