hvað kostar að gelda kött?!?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Jss » Wed 23. Nov 2011 14:24

Ég hef aldrei fundið fyrir neinni pressu frá hvorki mínum foreldrum né tengdaforeldrum, mesta pressan frá mér sjálfum. :)

Ég hef alltaf vitað að mig langaði í barn og við eigum von á okkar fyrsta barni, strák, í apríl 2012 og gætum ekki verið spenntari. :D
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby bimmer » Wed 23. Nov 2011 16:34

fart wrote:það er rétt, það er pressa frá samfélaginu, ég fann verulega fyrir þessu á sínum tíma frá foreldrum, tengdaforeldrum, frænkum, frændum, nánast öllum. Alveg gersamlega óþolandi á sínum tíma og í raun virkaði það letjandi á mig. Við vorum búin að vera saman í næstum 10 ár þegar fyrsta barn kom og það fannst mörgum alveg óskiljanlegar aðstæður.


Sama hér - við Lena vorum búin að vera saman næstum 10 ár þegar frk. Ísabella mætti á svæðið.

Pressan frá umhverfinu var orðin rosaleg löngu áður um að eignast barn. Þetta er ekki illa meint
hjá fólki en það áttar sig engan veginn á því hvað þetta getur orðið þrúgandi fyrir viðkomandi.

Spái því samt að Jón og frú verði komin í bleyjuskipti fyrr en þau grunar :lol:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby ValliFudd » Wed 23. Nov 2011 16:55

Svo verður þessi pressa hrikalega erfið þegar illa gengur að eignast barn. Setningar eins og "Þetta kemur þegar það á að koma" og svoleiðis eru mjög erfiðar.
Við Árný fórum í gegnum langt ferli, mörg utanlegsfóstur, fósturmissar.
Sonur minn eyddi mánuði í fyrsti, og fór í gegnum sprautunál :)

Það eru alls ekki allir sem "þora" að segja frá svona hlutum, eins og þetta sé eitthvað til að skammast sín yfir, sem er auðvitað fáránlegt.
Svo fólk þarf að hugsa áður en það segir hluti eins og "Jæja, á ekki að fara að koma með barn??". Þessi setning getur reynst mörgum mjög erfið.
Og einnig, að sjá stelpur sem "verða óvart óléttar" og bölva því. Það er ekkert gefið að þetta geti gengið upp.

En þetta gekk, reyndar erum við Árný ekki lengur saman í dag en drengurinn fæddist heill eftir frostgeymsluna hehe :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby íbbi_ » Thu 24. Nov 2011 20:08

haha, þessi þráður raunverulega tók flugið

varðandi ketti vs hunda þá finnst mér hundar voðalega nice dýr, og þangað til ég eignaðist kött þá hafði ég ekkert á móti þeim, ég hinsvegar hef 0% áhuga á að sinna jafn miklu dýri og hund, og -100% áhuga á að eiga kött en sit uppi með eitt kvikindi sökum þess að vera ekki einráður á heimilinu.

margir hunda og katta eigendur geta samt farið hrikalega í mig, þá sérastaklega kattarunnendur sem telja dýrin svo heilög nánast að það má ekkert um þau segja eða vera á móti einu eða neinu sem tengist þeim án þess að viðkomandi taki bara móðursíkiskastið á mann eða hvern sem vogar sér..

ég fann nú aldrei fyrir þrýsting varðandi barneignir, enda vorum við bara 20 og 24 ára þegar að stelpan okkar fæddist. En ég hinsvegar get alveg greint þennan þrýsting á að fólki finnst að það eigi að fara koma systkyni, sem við erum hvorugt til í næstum því strax. ef það er eitthvað sem foreldrahlutverkið hefur kennt mér það er það hvaða ábyrgð maður ber gagnvart einstakling sem þú kemur í þenna heim, og það er no turning back. og þá meina ég það ekki í neikvæðu heldur að það reddast ekki bara allt, að sjá fyrir barni er ekki hrist fram úr erminni, maður hefur algjörlega þurft að stokka upp sínum gildum og endurskoðað hvað skiptir máli og hvað ekki. ég persónulega vill ekki eignast fleyri börn fyrr en ég er búinn að klára nám og hafa raunverulegan grundvöll fyrir því að geta séð almennilega fyrir því barni auk þess sem ég á.

ég held engu síður að föðurhlutverkið hafi gert mér ofboðslega gott, og er sá langmesti skóli sem ég hef "numið"
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby IvanAnders » Thu 24. Nov 2011 23:15

Fínn þráður!

Mitt innlegg er:
Ein stjúpdóttir,
Barn á leiðinni í apríl/maí
Nýgeldur köttur á heimilinu :lol:
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Einarsss » Fri 25. Nov 2011 09:13

IvanAnders wrote:Fínn þráður!

Mitt innlegg er:
Ein stjúpdóttir,
Barn á leiðinni í apríl/maí
Nýgeldur köttur á heimilinu :lol:



:thup:
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Astijons » Sun 27. Nov 2011 19:31

Image
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Kristjan PGT » Sun 27. Nov 2011 20:51

ég get ekki gert að því en ég hlæ alltaf þegar ég les þetta topic!
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Kristjan PGT » Sun 27. Nov 2011 20:51

ég get ekki gert að því en ég hlæ alltaf þegar ég les þetta topic!
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Einarsss » Mon 28. Nov 2011 12:04

kostar um 9k hjá dýraspítalanum víðidal, kemur inn um morgun og fer heim um hádegi

:D Fer með minn þangað á föstudaginn í snipp snipp
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby íbbi_ » Mon 28. Nov 2011 14:12

er ekki hægt að díla við þá um að halda honum dáldið lengur :mrgreen:
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Jón Ragnar » Mon 28. Nov 2011 14:28

Það er örugglega fullt af fólki sem væri til í að ættleiða köttinn af þér Íbbi fyrst þetta er vandamál :)


Ég mundi alveg vera game, en báðir kettinir mínir eru handfill :thup:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby íbbi_ » Tue 29. Nov 2011 02:28

þessi köttur er því miður ekki á höttunum eftir nýju heimili, mæðgurnar á heimilinu hafa voðalega gaman af honum, það er bara ég sem hata hann
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby arnibjorn » Tue 29. Nov 2011 08:02

Þú verður bara að læra að elska köttinn íbbi, mér sýnist þú vera í vonlausri stöðu :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: hvað kostar að gelda kött?!?

Postby Mazi! » Tue 29. Nov 2011 10:30

íbbi_ wrote:þessi köttur er því miður ekki á höttunum eftir nýju heimili, mæðgurnar á heimilinu hafa voðalega gaman af honum, það er bara ég sem hata hann


:lol: :lol: :lol:
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 30 guests