Stefan325i wrote:
Ég er að spá í tryggingum og bifreiðargjöldum, eru þeri mánuðir dýrari eða ertu ekki að taka þann kostnað með.
Mjög gaman að fylgjast með þessu hjá þér.
Stundum soltið seinn að svara

En nei ég gleymi að taka þann kostnað með, Það hækkar vel þá mánuði sem sá kostnaður dettur á þar sem ég er hættur öllum greiðlsudreifingum og lánatökum eftir fall íslenska fjármálakerfisins

En allavega þá stendur mánaðarlegur meðalkostnaður í dag í 121.089kr
Þar af bensín að meðaltali 62.877kr
Rekstur að meðaltali 26.231kr
og viðhald að meðaltali 31.981kr
Kr/Km 74kr
Sem myndi gera 21,7 milljónir tæpar ef þetta hefði verið konstant kostnaður frá því að bíllinn var nýr

Ekinn 292.700 btw
En ágúst:
Ekinn slétta 1.700km
Kostaði 64.405kr
þar af bensín 64.405

Kostnaður á kílómeter 38kr
Setti á hann 291L af eldsneyti meðaleyðsla í hærri kantinum eða rétt rúmir 17L/100km
Annars geri ég nú ráð fyrir að geta farið að slaka á í viðhaldsþættinum þar sem það sem ég vildi gera er búið.
Eina sem hrjáir þennann bíl í dag er lakkið og sé ég ekki framá að gera neitt í því næstu mánuði allavega
