er að velta fyrir mér varðandi stýrismaskínu í bíl hjá mér, þetta er complete maskína eins og er í flestum yngri bmw.
ég skipti um dælu/forðabúr/hosur, setti í gang og prufaði og allt var þetta afar smooth, svo set ég bílinn inn í geymslu, svo eflaust 2 vikum seinna þá lekur hann öllum stýrisvökvanum af sér
mig grunar strax að háþrýstislöngurnar hafi misst hersluna e-h álíka, en sé að svo er ekki og það hefur ekki dropið lekið frá dæluni, eða slöngunum v/maskínu, ég sé svo að hosa utan um stýrisendann út úr maskínuni er rifin og dropar þaðan, en manni finnst nú hálf ótrúlegt að það tæmist kerfið þaðan
engu síður er mín ágiskun að það sé farin pakkdósin í maskínuni, og hosan fylllst af vökva og gefið sig, og þess vegna ekki lekið af bílnum fyrr en 2 vikum eftir að honum var lagt,
er aðalega að fiska eftir hvort menn séu sammála þeirri kenningu eða ekki, svona áður en ég kippi maskínuni úr, sem er afar leiðinlegt
hann ætti ekki að æla af sér vökvanum þótt það sé loft á kerfinu?
_________________ M.benz E320 Family Wagon Chevrolet Silverado vinnujálkur Chevrolet Silverado skúrajálkur Cadillac eldorado 1973, ísbíll
|