HAMAR wrote:
Seldu mér Pioneer CD-spilarann úr bílnum,
systir mín keypti hann handa mér í USA árið '94 og mig dauðlangar í hann aftur.
Leitt að heyra með bílinn

Fékk engann spilara með bílnum, hugsa að hann sé annaðhvort í höndum Reckless eða Trausta, annars er það að frétta með þennan eftir þokkalega skoðun á hlutunum kom í ljós að Vatnskassin skemmdist, stýrisdælan vældi soldið þegar ég setti hann í gang, spurning hvort hún sé kaput, útlitslega séð er 1x frambretti ónýtt, framstuðari, húdd, nýru, sílsaplöst, pústið skaddaðist eitthvað og það kom högg aftan á bílinn þannig að afturbrettið kýldist aðeins upp og það kom beygla í póstinn sem er á milli afturhurðar og afturglugga.
Ef það kostar ekki fleirri hundruð þúsund að gera við beygluna á afturbrettinu getur meira en vel verið að ég geri bara við bílinn, og eins og mál standa núna stefnir allt í að það gæti byrjað bara í næsta mánuði ef allt gengur upp, kem með myndir af gangi mála ef ég legg í að gera við hann en lofa engu.