Datt í hug að setja inn smá update hér þar sem þessi annars fíni vagn fór inn í geymslu núna á dögunum fyrir veturinn.
Ég ætlaði að nota bílinn í vetur en þar sem það var komið smá ryð hér og þar í hann þá tók ég ákvörðun að taka bílinn í gegn áður en saltið gerði þetta illt verra í vetur.
Planið var að hafa hann inni í nokkrar vikur og vinna hann niður fyrir málun á nokkrum panelum.
Þetta átti nú bara að vera örlítið púss hér og þar.
Ætlaði að henda afturrúðunni úr bílnum og mála í falsinn á skotthleranum til að koma í veg fyrir örlitla ryðmyndun sem hafði myndast þar.
En neiiiiiiiiiii. Það er aldrei svoleiðis.
Ég byrjaði á þessu í gærkvöldi. Henti bílnum á búkka að aftan, dót allt dótið úr skottinu og það fyrsta sem blasti við var:

Alls ekki slæmt, var mikið verra í gamla E36 323 sem ég tók í gegn,

Reif tjörupappan úr og það var ekkert mikið ryð þar undir.

Svo var aðeins byrjað að myndast ryð þar sem geymirinn er, ekkert stórt mál.
Þegar þetta var búið ætlaði ég að rífa stuðarann af, athuga hvernig ástandið væri þar undir. Ein festingin líka á hliðinni brotin sem stuðarinn rennur í þannig ég ætlaði að skipta henni út líka. Náði ekki stuðaranum af útaf blessaða dráttarbeislinu, frábært. Og allir boltar þar nátturulega fastari en fjandinn. Verð því að skera það allt í döðlur til að ná að losa beislið. En það er nú líka alveg í lagi þar sem ég vill skipta um boltana í beislinu sem ná í gegnum skottið. Setja nýja bolta og setja tektíl yfir þetta, var farið að ryðga svolítið inn í skotti.
En þegar þetta var búið ákvað ég að fara að skoða "ryðið" sem ég ætlaði aðeins að spóla upp í hjólskálunum til að geta látið mála.
Bankaði í hjólskólarnar og allt fínt, bankaði í sílsann aðeins með skrúfjárni og tók eftir smá ryði, fór í gegn....
Það er sem sagt komið svolítið ryð í sílsana báða að aftan, þar að spæna þetta upp og sjóða nýtt í þetta.
Þetta kvöld kenndi mér að maður á aldrei að setja helv. bílinn sinn inn í skúr , þetta endar alltaf svona hjá mér.
En ég er með góða aðstöðu og liggur ekkert á þessu.
Ég stefni á að klára þetta fyrir áramót en annars er ég ekkert stressaður ef það gerist ekki.
Bíllinn verður þá alla vega orðinn boðlegur að mínum dómi eftir veturinn.
