gardara wrote:
IceDev wrote:
birkire wrote:
þröngsýnt hugarfar er þröngsýnt
Held að eina þröngsýna hugarfarið hér er í stancelovers. Bílar í þeim heimi eru ekki cool nema að þeir líta út eins og þeir hafa komið beint út úr hringrás eða þá búið að fjarlægja öxlana undan bílnum.
Held að þú sért að misskilja.
Til þess að púlla djarfa og ögrandi málningu, þá þarftu að vera djarfur og ögrandi á fleiri sviðum (felgur, lækkun, etc.)
Það er ekki hægt að vera djarfur með litaval og hafa bílinn svo bara bone stock á bottlecaps. Mér þætti þessi litur hrikalega ljótur á svoleiðis tæki, en með réttum felgum, lækkun osfrv væri hægt að fá djarft og töff heildarlúkk.
Ég skil það vel, enda fíla ég örfáa ratlook bíla og er það aðallega út af þeim ástæðum sem þú nefndir. Hinsvegar fannst mér svo mikil hræsni hjá gardara að kalla fólk þröngsýnt ef það fílar ekki þessa litlu senu sem er stance.
Þetta er svona eins og hipster sem að kallar venjulegt fólk mainstream og plebbalegt á meðan að það lætur ekki sjá sig út úr húsi án þess að vera með yfirvaraskeggið krullað, Rayban Wayfarers á smettinu, skinny jeans með trefil um hálsinn og í retro 80s cartoon bolnum sínum.
Nóg um það allavega...
Ef að maður ætlar að pulla E36 limousine í einhverjum svoleiðis æfingum þá þarf að fara ansi drastískar leiðir og er ég sammála flestum að olive green mattur er ekki beint að gera góða hluti.