Olís er búið að skifta út Autoglym og flytja sjálfir inn bón sem er frá Nielsen og er þrælgott bón ég nota tvær tegundir í stöðini hjá mér og nota lang mest Gold Edition sem er langtímabón og eftir 2 mánuði í veðri eins og verið hefur hér suður með sjó Norðan átt og saltaustur og svo Austan átt og öskuryk þá skolaði ég af bílnum og þurkaði með apaskinni og það perlar enn af og bíllinn losar sig auðveldlega við allt vatn þeas góð bónfilma enn á bílnum enda er það gefið út að það sé sex sinnum endingarlengra en venjuleg bón.Svo er ég að nota Nielsen Blue Diamond sem er Carnuba bón og það er aðeins minni gljái og mun styttri ending en mjög létt að vinna það af bílnum en bæði þessi bón ber ég á alla fleti bílsins og gef þeim tuttugu til 30 mínútur og hafa viðskiftavinir mínir veriðeinstaklega ánægðir með þessi bón og þá sér í lagi Gold Edition bónið

Do Do juice er náttlega snilld en ég fæ það ekki til að endast nógu vel en kannski er það líka bara sýningasalabón þeas ekki gert fyrir veðrun eða þvott alment
