by SteiniDJ » Mon 15. Aug 2011 00:14
Thorium er samt ekkert undraefni. Erfitt að kljúfa það sökum þess að það eru engir kljúfanlegir ísótópar svo það þarf að bæta við úraníum eða plútóníum við. Hitinn sem þyrfti til þess að brjóta efnið í thoríumdíoxíð er líka svo mikill að það myndi kalla fram á nýja tækni í þokkabót.
Við þyrftum að umbylta öllu því sem við höfum lært og öllu því sem við gerum til þess að nýta þetta efni. Hefðbundin framleiðsla hentar illa og kæmum við út í mínus í kjarnorkuverum sem nota léttvatn. Aðrar aðferðir sem okkur eru kunnar myndi framleiða Úraníum223 og þá væri þetta ansi tilgangslaust. Þetta Úraníum223 er líka hægt að nota í vopn, þó tengist það þessu ekki beint.
Ég held að menn vestan hafs stefni frekar að samrunaorku. Það er langt í það, en þarna liggur peningurinn.