jæja það var aðeins unnið í þessum í gær og í dag við rafkerfið! þetta ætlar að vera smá hausverkur að fá mælaborðið til að virka! innréttiningin þarf að fara úr til að leggja fyrir nýjum vírum frá bensíntank að mælaborði! svo er díóður í öllum gaumljósum í nýja mælaboðinu en perur í hinu sem er vandamál! eiginlega sé fram á það í dag hefði verið betra að setja allt rafkerfi úr m5 í allan bílinn heldur en að fá þessa 2 bíla til að vinna saman! en þetta verður tæklað á 1 eða annan hátt!