Jæja, þessi er víst enn þá á lífi. Hann lagðist í smá dvala yfir veturinn og við það dó rafgeymirinn, kominn nýr í, ný kerti og súrefnisskynjarar. Kominn aftur í umferð. Svo smurning og svona fyrir sumarið.
En nú er ég með spurningu.. Hvert er best að fara með bílinn til að láta kíkja á lítilsháttar ryð hér og þar (er t.d. með einn blett hjá bensínlokinu, en ekki hvað)? Hef ekki átt mikið við sprautuverkstæði og þekki lítið til.
