Þessir flugmenn!!!!

Tókstu flott myndband, eða veistu um eitthvað? Þú getur póstað því hér.

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby saemi » Wed 29. Jun 2011 02:00

zazou wrote:
xtract- wrote:
saemi wrote:
Alpina wrote:...

...


Vantar like button :)

x2

Btw Sæmi (eða aðrir sem þekkja til): hver eru laun flugmanna/-stjóra sem stýra sambærilegum vélum í norð-vestur Evrópu? Væri til í að heyra upphæðirnar í Evrum eða Pundum (opinber gengiskross ISK við aðrar myntir gefur bara rangar hugmyndir þar sem Seðlabankinn er bara nú síðast í dag að treida evruna á 210+ þó hún sé á '170' eða svo).


Við erum vel undir því sem flugmenn hjá sambærilegum félögum erlendis hafa. Enda gengur mjög vel hjá fyrirtækinu okkar um þessar mundir, launakostnaður hjá þeim hefur snarlækkað við gengisfallið.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby gulli » Wed 29. Jun 2011 19:04

saemi wrote:
gulli wrote:Og hvernig er hægt að líta á þetta sem EKKI verkfalls aðgerðir þegar flugmenn eru að neyta að vinna yfirvinnu ? Eru þeir alla jafna að neita henni ??? Það hélt ég ekki.. hef ekki verið mikið var við niðurfellingu flugaáætlanna í vetur :roll:


Sorrí, en þú veist ekki hvað þú ert að tala um þarna.

Það er ENGIN yfirvinna á veturna. Það er undantekning ef einhver vinnur yfirvinnu frá september fram í maí. Þá er ekki vöntun á mannskap, nóg af fólki á varavöktum. Þetta er bara hjá okkur á sumrin. Þá vill fyrirtækið ekki ráða aukalega mannskap til að hafa eðlilega mönnun á varavöktum, eða jafnvel vinnuskrá. Það stólar á að fá mannskap til að vinna á frídögunum sínum.

(það kostar fyrirtækið fleiri milljónir að þjálfa nýliða, þannig að þeir telja sig vera að spara með að hafa sem knappast mannað á sumrin)


Biðst forláts á því að hafa farið með rangt mál hvað yfirvinnu varðar :)

En hvað sem því líður þá finnst mér ekki rétt að standa að þessu eins og hefur verið gert þar sem það kostar svo fjölda mörg fyrirtæki í landinu tekjumissir.

ps: það er talað um það í fjölmiðlum að flugmenn séu í verksfalls aðgerðum :lol:
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby saemi » Wed 29. Jun 2011 19:48

gulli wrote:Biðst forláts á því að hafa farið með rangt mál hvað yfirvinnu varðar :)

En hvað sem því líður þá finnst mér ekki rétt að standa að þessu eins og hefur verið gert þar sem það kostar svo fjölda mörg fyrirtæki í landinu tekjumissir.

ps: það er talað um það í fjölmiðlum að flugmenn séu í verksfalls aðgerðum :lol:


Allt í fínu með misskilningin, þú ert ábyggilega ekki einn um að halda að við séum að moka inn seðlum með yfirvinnu.

Ég veit að það er talað um það í fjölmiðlum að við séum í verkfallsaðgerðum, en það ásamt mörg fleiri atriði eru bara ekki rétt. T.d. þegar verið er að tala um laun okkar, þá eru taldar með lífeyrisgreiðslur okkar, pening sem við sjáum aldrei útborgaðan.

Það er frekar erfitt að fá hlutlausa umræðu í fjölmiðlum þegar fyrirtækið sem við eigum í deilum við er einn stærsti kaupandi auglýsinga hjá þeim. Fjölmiðlar þora ekki fyrir fimm aura að rugga bátnum.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby srr » Wed 29. Jun 2011 19:55

saemi wrote:
gulli wrote:Biðst forláts á því að hafa farið með rangt mál hvað yfirvinnu varðar :)

En hvað sem því líður þá finnst mér ekki rétt að standa að þessu eins og hefur verið gert þar sem það kostar svo fjölda mörg fyrirtæki í landinu tekjumissir.

ps: það er talað um það í fjölmiðlum að flugmenn séu í verksfalls aðgerðum :lol:


Allt í fínu með misskilningin, þú ert ábyggilega ekki einn um að halda að við séum að moka inn seðlum með yfirvinnu.

Ég veit að það er talað um það í fjölmiðlum að við séum í verkfallsaðgerðum, en það ásamt mörg fleiri atriði eru bara ekki rétt. T.d. þegar verið er að tala um laun okkar, þá eru taldar með lífeyrisgreiðslur okkar, pening sem við sjáum aldrei útborgaðan.

Það er frekar erfitt að fá hlutlausa umræðu í fjölmiðlum þegar fyrirtækið sem við eigum í deilum við er einn stærsti kaupandi auglýsinga hjá þeim. Fjölmiðlar þora ekki fyrir fimm aura að rugga bátnum.

Fyrir utan það að fjölmiðlar búa bara til spennandi fréttir, óháð því hvort þær eigi við rök að styðjast eða ekki.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby Stefan325i » Mon 11. Jul 2011 00:04

Persónulega finnst mér alveg magnað þegar fólk er að væla yfir að næsti maður er með góð laun, persónulega er ég bara frekar ánægður fyrir hond þeirra sem eru í góðum stöðum. Of á tíðum þýðir það að það er búið að legga mikið á sig með annaðhvort skólagöngu eða reynslu í starfi.

Að vera flugmaður er mikið ábyrgðarstarf, skreppa í vinnuna og bera ábyrgð á 500 manns. Tala nú ekki um allan þann tíma og kostnað sem það tekur að ná þeirri reynslu og kunnáttu að fá að stjórna svona miljarða tæki.

Kunningi minn er nýlega búinn að klára atvinnuflugmanninn kostaði hann 7 millur minnir mig, fyrir utan alla einkaflugmanns tímana sem hann er með á bakinu líka, en ekki fær hann vinnu beint úr skóla. Hann er núna í viðtal hjá Ryanair og ef hann fær stöðuna þá þarf hann að borga sjálfur fyrir réttindin á 737 vélina sem eru 3-4 millur og drengurinn er tibúinn að gera það til að komast inn í geirann.

Að flugmenn fari í yfirvinnubann er nú ekki flugmönnunum að kenna, heldur átti fyrirtæið að vera löngu búinn að semja við þá.


Ef þið eruð ósátt með laun ykkar eða eruð óhamingusöm í starfi, þá mæli ég með að fara í skóla og gera eithvað í málunum, fórna 3-5 árum í æðri mentun og uppskera þá eins og helvítis fugmennirnir sem eru með millu á mánuði.
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby Vlad » Mon 11. Jul 2011 23:59

Stefan325i wrote:Persónulega finnst mér alveg magnað þegar fólk er að væla yfir að næsti maður er með góð laun, persónulega er ég bara frekar ánægður fyrir hond þeirra sem eru í góðum stöðum. Of á tíðum þýðir það að það er búið að legga mikið á sig með annaðhvort skólagöngu eða reynslu í starfi.

Að vera flugmaður er mikið ábyrgðarstarf, skreppa í vinnuna og bera ábyrgð á 500 manns. Tala nú ekki um allan þann tíma og kostnað sem það tekur að ná þeirri reynslu og kunnáttu að fá að stjórna svona miljarða tæki.

Kunningi minn er nýlega búinn að klára atvinnuflugmanninn kostaði hann 7 millur minnir mig, fyrir utan alla einkaflugmanns tímana sem hann er með á bakinu líka, en ekki fær hann vinnu beint úr skóla. Hann er núna í viðtal hjá Ryanair og ef hann fær stöðuna þá þarf hann að borga sjálfur fyrir réttindin á 737 vélina sem eru 3-4 millur og drengurinn er tibúinn að gera það til að komast inn í geirann.

Að flugmenn fari í yfirvinnubann er nú ekki flugmönnunum að kenna, heldur átti fyrirtæið að vera löngu búinn að semja við þá.


Ef þið eruð ósátt með laun ykkar eða eruð óhamingusöm í starfi, þá mæli ég með að fara í skóla og gera eithvað í málunum, fórna 3-5 árum í æðri mentun og uppskera þá eins og helvítis fugmennirnir sem eru með millu á mánuði.


Amen.
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby IceDev » Wed 13. Jul 2011 06:48

Það sem er auðvitað fyndnast við þetta er þegar að fólk kvartar yfir launum hjá aðilum sem sjá svona 80% um að fyrirtækið sé í raun og veru starfandi en minnast svo ekkert á það að það sama fyrirtæki sé búið að skila gríðarlegum hagnaði í mörg ár.

Ef eitthvað er ættu slíkir aðilar að hugsa örlítið lengra og hugsa hverjir hafa mestan hagnað að greiða þeim aðilum sem að FLJÚGA FLUGVÉLUNUM þeirra verri laun.

Mér þætti gaman að sjá þá aðila vinna hjá fyrirtæki sem í gríð og erg skilaði umtalsverðum hagnaði og myndi svo reglulega hafna beiðni um launahækkum. Kannski myndu þeir segja eitthvað á borð við "Við getum því miður ekki veitt þér launahækkun eins og efnahagurinn er í dag."

Ég efast stórlega um að þeir myndu vera ánægðir launþegar.
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Previous

Return to Myndbönd

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests