Þessir flugmenn!!!!

Tókstu flott myndband, eða veistu um eitthvað? Þú getur póstað því hér.

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby gulli » Mon 27. Jun 2011 12:34

Á ekki að setja lög á flugmennina ? ég heyrði það.

Það er ekki hægt að líða það að menn fari í eitthvað vinnu stopp sem kostar fyrirtækin og bara allt þjóðlífið í landinu fullt fullt af peningum ! Það er alveg raunhæf tala að á þessum 2 dögum sem icelandair hefur þurft að leggja niður flug vegna þessa yfirvinnubanns hjá flugmönnumm hefur kostað margar milljónir!

Sæmi: Ég heyrði að það væri í ykkar samningum að manna svona aukavaktir.. það væri að hleypa laununum upp.. og að flugmenn vildu alls ekki missa það ?!?
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby saemi » Mon 27. Jun 2011 14:10

gulli wrote:Á ekki að setja lög á flugmennina ? ég heyrði það.

Þetta er bara bull.

Ég segi aftur, það er EKKI byrjað í verkfallsaðgerðum. Það er ekki hægt að setja lög sem skipa okkur að vinna á frídögum okkar. Heldur þú að það gangi að sett séu lög í landinu sem skipa fólki að vinna um helgar? Það væri þá eftir öllu hjá þessarri vinstri stjórn, skipa öllum að fara að vinna á frídögum sínum.

Þetta með að manna aukavaktir og hleypa launum upp er argasta bull. Við erum með föst mánaðarlaun óháð því hvernig við erum settir upp á vaktaskrá. Þeir ráða hvort þeir setja okkur upp á varavaktir eða flugvaktir eða hvað sem er. Skiptir engu fyrir okkur launalega séð. Eina sem breytist er svo dagpeningarnir sem bætast ofan á fyrir þau flug sem við fljúgum.

Menn þurfa að stíga varlega til jarðar þegar þeir segja að það sé ólíðandi að fólk berjist fyrir kjörum sínum. Hvað eigum við að gera ef við erum ekki á réttlátum launum? Eigum við bara að vinna af því að fólkið í landinu vill það?
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby Alpina » Mon 27. Jun 2011 19:40

[quote="saemi" Eina sem breytist er svo dagpeningarnir sem bætast ofan á fyrir þau flug sem við fljúgum.

Menn þurfa að stíga varlega til jarðar þegar þeir segja að það sé ólíðandi að fólk berjist fyrir kjörum sínum. Hvað eigum við að gera ef við erum ekki á réttlátum launum? Eigum við bara að vinna af því að fólkið í landinu vill það?[/quote]

Ég ætla mér ekki að segja að laun flugmanna tilheyri láglauna-stétt það er alveg á tæru

þetta eru fín laun og ðats it,,,,

en ég tek undir þetta með að menn sé ekki hrifnir af auka yfirvinnu osfrv
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby saemi » Mon 27. Jun 2011 21:26

Alpina wrote:
Ég ætla mér ekki að segja að laun flugmanna tilheyri láglauna-stétt það er alveg á tæru

þetta eru fín laun og ðats it,,,,

en ég tek undir þetta með að menn sé ekki hrifnir af auka yfirvinnu osfrv

Það væru nú ekki margir að fara út í þetta ef þetta væri láglaunastétt, það er víst.

Þetta er skemmtileg vinna, en hún er krefjandi og tekur á. Erfið líkamlega og andlega og mjög erfitt að fá starf til að byrja með.

Af hverju eru allir Íslendingar svona ofsalega uppteknir af því ef að einhver er með "góð" laun? Það má enginn hafa það neitt betra en næsti maður, jafnvel þó maður hafi lagt miklu meira á sig til að komast þangað sem maður er í dag. Allt í lagi, það má öllu ofgera eins og var gert hér í bönkum og fyrirtækjum, þegar kaupréttarsamningar tryggðu mönnum eftirlaun og gott betur á einu ári. En þetta er nú ekki alveg það sem er í gangi hér.

Eins og staðan er nú á Íslandi, þá er einstaklingur sem er með 250 þúsund útborgað að hafa það svipað og sá sem er með 450 þúsund. Það er allt jafnað með styrkjum og skattkerfinu. Þetta er ein allsherjar jöfnunarstefna. það endar með að enginn nennir að vinna meira en fyrir lágmarkslaunum, því hann græðir ekkert á því.

Flugmaður sem byrjar að vinna hjá Icelandair eftir að hafa eytt 6-7 milljónum í nám sitt er með c.a. 350 þús útborgað fyrir utan dagpeninga. Dagpeningar fara að lágmarki til helminga í uppihald þegar maður er erlendis en jú, maður getur nurlað og átt afgang ef maður vill (og þarf fyrir marga). Þessi maður vinnur frá júní til ágúst fyrstu 2-3 árin, svo frá maí til september eftir það og svo eftir 6-8 ár þá fær hann heilsársvinnu. Jeeeeííí!

59 flugmönnum var sagt upp í dag hjá Icelandair, ásamt mér og 37 öðrum flugstjórastöðunni. Þetta hefur verið árviss viðburður hjá mörgum í fjölda ára. Ég er búinn að vinna hjá þessu fyrirtæki í 13 ár og er ekki ennþá öruggur með stöðu mína. Þó svo að ég þurfi nú ekki að kvarta yfir því að missa vinnuna, en það er leiðinlegt að sjá tekjur sínar skerðast um 30% á hverju hausti.

Ég held að fólk ætti aðeins að slaka á í þessu, það er ekki eins og við séum á ofurlaunum. Hvað þarf til að framfleyta fjölskyldu í dag? Samkvæmt ríkinu eru heildarútgjöld 4ra manna fjölskyldu í dag eru 628.847 krónur.

https://www.velferdarraduneyti.is/neysluvidmid/

Samkvæmt þessu þarf að hafa c.a. 1.4 í mánaðarlaun til að geta þetta miðað við núverandi skattkerfi.

Hvað er þá sanngjarnt að ég hafi í laun ef þetta er raunin? Segið mér það!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby xtract- » Mon 27. Jun 2011 23:06

saemi wrote:

Vantar like button :)
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby gulli » Tue 28. Jun 2011 00:41

saemi wrote:
gulli wrote:Á ekki að setja lög á flugmennina ? ég heyrði það.

Það er ekki hægt að líða það að menn fari í eitthvað vinnu stopp sem kostar fyrirtækin og bara allt þjóðlífið í landinu fullt fullt af peningum ! Það er alveg raunhæf tala að á þessum 2 dögum sem icelandair hefur þurft að leggja niður flug vegna þessa yfirvinnubanns hjá flugmönnumm hefur kostað margar milljónir!

Sæmi: Ég heyrði að það væri í ykkar samningum að manna svona aukavaktir.. það væri að hleypa laununum upp.. og að flugmenn vildu alls ekki missa það ?!?

Þetta er bara bull.

Ég segi aftur, það er EKKI byrjað í verkfallsaðgerðum. Það er ekki hægt að setja lög sem skipa okkur að vinna á frídögum okkar. Heldur þú að það gangi að sett séu lög í landinu sem skipa fólki að vinna um helgar? Það væri þá eftir öllu hjá þessarri vinstri stjórn, skipa öllum að fara að vinna á frídögum sínum.

Þetta með að manna aukavaktir og hleypa launum upp er argasta bull. Við erum með föst mánaðarlaun óháð því hvernig við erum settir upp á vaktaskrá. Þeir ráða hvort þeir setja okkur upp á varavaktir eða flugvaktir eða hvað sem er. Skiptir engu fyrir okkur launalega séð. Eina sem breytist er svo dagpeningarnir sem bætast ofan á fyrir þau flug sem við fljúgum.

Menn þurfa að stíga varlega til jarðar þegar þeir segja að það sé ólíðandi að fólk berjist fyrir kjörum sínum. Hvað eigum við að gera ef við erum ekki á réttlátum launum? Eigum við bara að vinna af því að fólkið í landinu vill það?

En finnst þér eðlilegt að ein stétt geti valdið fleiri fleiri fyrirtækjum milljóna tjóni með kjaradeilum ? Það finnst mér ekki allavega.
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby ömmudriver » Tue 28. Jun 2011 03:05

gulli wrote:En finnst þér eðlilegt að ein stétt geti valdið fleiri fleiri fyrirtækjum milljóna tjóni með kjaradeilum ? Það finnst mér ekki allavega.

Gulli ekki vera svona þröngsýnn á eina stétt, hvað gerist ef flugumferðarstjórar fara í verkfall, hvað gerist ef flugvirkjar fara í verkfall, hvað gerist ef að öryggisverðirnir uppá velli fara í verkfall, hvað gerist ef að starfsfólkið í innritun fer í verkfall...................

Það er líka ástæða fyrir því að við hlaðmenn megum ekki fara í verkfall hún er sú að ef við færum í verkfall þá myndi það hægja mikið á afgreiðslu flugvéla og mögulega stoppa hana alveg.

Ég er BTW ekki að segja að flugmenn og flugstjórar séu í verkfalls aðgerðum.
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby saemi » Tue 28. Jun 2011 10:43

gulli wrote:En finnst þér eðlilegt að ein stétt geti valdið fleiri fleiri fyrirtækjum milljóna tjóni með kjaradeilum ? Það finnst mér ekki allavega.

Í raun finnst mér það elilegt já, en það er ekki sama og sanngjarnt. Það er frekar súrt þegar aðrir þurfa að líða fyrir gjörðirnar.

En það eru 2 deiluaðilar, það hlýtur þá að mega benda á Icelandair alveg eins og flugmenn sem sökudólga. Þeir eru búnir að hafa 6 mánuði til að leysa þett með okkur, ásamt öðrum stéttum sem þeir vilja / vildu ekki semja við í tíma.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby Zed III » Tue 28. Jun 2011 15:35

saemi wrote:Ég held að fólk ætti aðeins að slaka á í þessu, það er ekki eins og við séum á ofurlaunum. Hvað þarf til að framfleyta fjölskyldu í dag? Samkvæmt ríkinu eru heildarútgjöld 4ra manna fjölskyldu í dag eru 628.847 krónur.

https://www.velferdarraduneyti.is/neysluvidmid/

Samkvæmt þessu þarf að hafa c.a. 1.4 í mánaðarlaun til að geta þetta miðað við núverandi skattkerfi.

þetta er alveg crazy shit tölur. :argh: Það eru ekki margir sem eru að ná þessu í dag án þess að ganga á séreign.

Styð ykkur annars í aðgerðum, svo lengi sem þær vara ekki of lengi. Ég er nefnilega á leið til Barcelona eftir nokkrar vikur.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby bimmer » Tue 28. Jun 2011 17:50

Zed III wrote:

Barcelona?!?!?!?!?

Í hvaða bransa vinnur þú eiginlega?!?!?!?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby xtract- » Tue 28. Jun 2011 19:27

gulli wrote:
saemi wrote:
gulli wrote:Á ekki að setja lög á flugmennina ? ég heyrði það.

Það er ekki hægt að líða það að menn fari í eitthvað vinnu stopp sem kostar fyrirtækin og bara allt þjóðlífið í landinu fullt fullt af peningum ! Það er alveg raunhæf tala að á þessum 2 dögum sem icelandair hefur þurft að leggja niður flug vegna þessa yfirvinnubanns hjá flugmönnumm hefur kostað margar milljónir!

Sæmi: Ég heyrði að það væri í ykkar samningum að manna svona aukavaktir.. það væri að hleypa laununum upp.. og að flugmenn vildu alls ekki missa það ?!?

Þetta er bara bull.

Ég segi aftur, það er EKKI byrjað í verkfallsaðgerðum. Það er ekki hægt að setja lög sem skipa okkur að vinna á frídögum okkar. Heldur þú að það gangi að sett séu lög í landinu sem skipa fólki að vinna um helgar? Það væri þá eftir öllu hjá þessarri vinstri stjórn, skipa öllum að fara að vinna á frídögum sínum.

Þetta með að manna aukavaktir og hleypa launum upp er argasta bull. Við erum með föst mánaðarlaun óháð því hvernig við erum settir upp á vaktaskrá. Þeir ráða hvort þeir setja okkur upp á varavaktir eða flugvaktir eða hvað sem er. Skiptir engu fyrir okkur launalega séð. Eina sem breytist er svo dagpeningarnir sem bætast ofan á fyrir þau flug sem við fljúgum.

Menn þurfa að stíga varlega til jarðar þegar þeir segja að það sé ólíðandi að fólk berjist fyrir kjörum sínum. Hvað eigum við að gera ef við erum ekki á réttlátum launum? Eigum við bara að vinna af því að fólkið í landinu vill það?

En finnst þér eðlilegt að ein stétt geti valdið fleiri fleiri fyrirtækjum milljóna tjóni með kjaradeilum ? Það finnst mér ekki allavega.

Bíddu bara þangað til leikskólakennarar fara í verkfall, það lamast allt :lol:
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby Zed III » Tue 28. Jun 2011 19:35

bimmer wrote:
Zed III wrote:
saemi wrote:Ég held að fólk ætti aðeins að slaka á í þessu, það er ekki eins og við séum á ofurlaunum. Hvað þarf til að framfleyta fjölskyldu í dag? Samkvæmt ríkinu eru heildarútgjöld 4ra manna fjölskyldu í dag eru 628.847 krónur.

https://www.velferdarraduneyti.is/neysluvidmid/

Samkvæmt þessu þarf að hafa c.a. 1.4 í mánaðarlaun til að geta þetta miðað við núverandi skattkerfi.

þetta er alveg crazy shit tölur. :argh: Það eru ekki margir sem eru að ná þessu í dag án þess að ganga á séreign.

Styð ykkur annars í aðgerðum, svo lengi sem þær vara ekki of lengi. Ég er nefnilega á leið til Barcelona eftir nokkrar vikur.

Barcelona?!?!?!?!?

Í hvaða bransa vinnur þú eiginlega?!?!?!?

Hvar er peningurinn í dag 8)
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby gulli » Tue 28. Jun 2011 19:58

ömmudriver wrote:
gulli wrote:En finnst þér eðlilegt að ein stétt geti valdið fleiri fleiri fyrirtækjum milljóna tjóni með kjaradeilum ? Það finnst mér ekki allavega.

Gulli ekki vera svona þröngsýnn á eina stétt, hvað gerist ef flugumferðarstjórar fara í verkfall, hvað gerist ef flugvirkjar fara í verkfall, hvað gerist ef að öryggisverðirnir uppá velli fara í verkfall, hvað gerist ef að starfsfólkið í innritun fer í verkfall...................

Það er líka ástæða fyrir því að við hlaðmenn megum ekki fara í verkfall hún er sú að ef við færum í verkfall þá myndi það hægja mikið á afgreiðslu flugvéla og mögulega stoppa hana alveg.

Ég er BTW ekki að segja að flugmenn og flugstjórar séu í verkfalls aðgerðum.

Enda á það sama að gilda um þá ! Ég er ekki bara að tala um flugmenn.. þó svo ég hafi vissulega nefnt þá þar sem þeirra stétt er akkurat þessa dagana í deilum.

Og hvernig er hægt að líta á þetta sem EKKI verkfalls aðgerðir þegar flugmenn eru að neyta að vinna yfirvinnu ? Eru þeir alla jafna að neita henni ??? Það hélt ég ekki.. hef ekki verið mikið var við niðurfellingu flugaáætlanna í vetur :roll:
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby zazou » Tue 28. Jun 2011 21:01

xtract- wrote:
saemi wrote:
Alpina wrote:...

...

Vantar like button :)

x2

Btw Sæmi (eða aðrir sem þekkja til): hver eru laun flugmanna/-stjóra sem stýra sambærilegum vélum í norð-vestur Evrópu? Væri til í að heyra upphæðirnar í Evrum eða Pundum (opinber gengiskross ISK við aðrar myntir gefur bara rangar hugmyndir þar sem Seðlabankinn er bara nú síðast í dag að treida evruna á 210+ þó hún sé á '170' eða svo).
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Re: Þessir flugmenn!!!!

Postby saemi » Wed 29. Jun 2011 01:53

gulli wrote:Og hvernig er hægt að líta á þetta sem EKKI verkfalls aðgerðir þegar flugmenn eru að neyta að vinna yfirvinnu ? Eru þeir alla jafna að neita henni ??? Það hélt ég ekki.. hef ekki verið mikið var við niðurfellingu flugaáætlanna í vetur :roll:

Sorrí, en þú veist ekki hvað þú ert að tala um þarna.

Það er ENGIN yfirvinna á veturna. Það er undantekning ef einhver vinnur yfirvinnu frá september fram í maí. Þá er ekki vöntun á mannskap, nóg af fólki á varavöktum. Þetta er bara hjá okkur á sumrin. Þá vill fyrirtækið ekki ráða aukalega mannskap til að hafa eðlilega mönnun á varavöktum, eða jafnvel vinnuskrá. Það stólar á að fá mannskap til að vinna á frídögunum sínum.

(það kostar fyrirtækið fleiri milljónir að þjálfa nýliða, þannig að þeir telja sig vera að spara með að hafa sem knappast mannað á sumrin)
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

PreviousNext

Return to Myndbönd

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 31 guests