Það er mjög létt að klúðra þessu þegar kerra byrjar að swinga svona, en eins og jón sagði þá er bara best að hægja á og leiðrétta eins lítið og hægt er
Hef séð svipað gerast á Dalveginum, samt ekki alveg svona slæmt, þá var gaur með timbur á kerru, og kerran var of þung að aftan og allt grip farið hjá afturhjólum. Hann fór að swinga svona og afturdekkin tókust fljótlega á loft. En það reyndar þarf ekki að vera að það sé það sama að gerast þarna, bara datt það atvik strax í hug. Er með núll reynslu í akstri með kerru..
hef lent i þessu sjálfur með e34 á kerru, ég pinn fraus allur og slakaði bara á gjöfinni og hélt styrið beint þá hætti þetta, aldrei verið eins hræddur á ævinni minni
Lenti i þessu með Benz C-class á kerruni og var á sirka 80 km, sleppti bara bensíngjöfinni og þá náði kerran að leiðrétta sig. Ástæðan fyrir því að þetta gerðist var að bíllinn var alltof aftarlega á kerrunni.
Dóri- wrote:ég hef alltaf heyrt að maður á að gefa allt í botn þegar svona byrjar, sama regla og þegar mótorhjól byrjar að fishtaila svona
Það er það sem ég hef heyrt, sérstaklega frá mönnum með sleða kerrur og þá oft í smá hálku eða snjó Það hljómar nú betur að sleppe gjöfinni og reyna að hægja á sér
Í fyrsta lagi: Hann var að keyra OF hratt! Í öðru lagi: Hann sló ekki af Í þriðja lagi: Þessi bílakerra er með alltof háan þyngdarpunkt og í fjórða lagi: Þá kemur mér ekkert á óvart að þetta sé í Póllandi......*hóst* Bartek *hóst*
Been there, done that með kerru aftan í WRX og gasgrill sem var það eina sem skemmdist eiginlega ekki neitt. Ástæðan var að kerran var með slappt beisli og það tók Porsche 911 fram úr mér og ég varð ansi leiður yfir því og gleymdi alveg að kerran hékk aftan í. Skipt ansi hressilega niður og druslan botnuð, beislið hoppaði af og við tók geðveikin. Kostaði skottlok og málningarvinnu og fyrir utan að þetta gerðist á umferðarþungri götu og var mjög neyðarlegt þá var mér ekki einu sinni boðið í BBQ þegar búið var að frakta helvítis grillið til Kef-City.