by JOGA » Tue 14. Jun 2011 13:06
Þú ættir alveg að geta verið með 10mm spacera allan hringinn.
Orginal dekkin eru samt svolítið feit þannig að það er líklegt að þú þurfir að rúlla hressilega ef þú ætlar að halda þeim.
Orginal offsett er ET41 svo 10mm spacer fer með þetta í ET31.
Felgan sjálf stæði þá 1,7mm utar en ég með mína 8" breiðu felgu og ET20.
Til viðbótar ertu með 4cm breiðara dekk en ég.
Ég er með pláss fyrir breiðari felgu að aftan eða lægra offsett en ekki alveg 40mm samt. Langar t.d. mikið í 9" breytt að aftan sem ég veit að ég get troðið undir með réttu dekkjunum.
Að framan sé ég ekki að þetta ætti að vera vandamál. ET41 + 10mm fer með þetta í ET31.
Felgan er 7,5" breið og því ertu ca. 23,7 mm innar en ég með 8" og ET20. Á móti ertu með 20mm breiðara dekk.
Ég er ekki með mikið pláss að framan eftir en samt líklega nálægt 10-15mm miðað við gróft set up.
=> sem sagt farðu varlega út af dekkjunum en ef þú ert tilbúinn til að fara í nettari dekk gengur þetta allt upp.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir