Er að kaupa volatiles mest; fylgist þó vel með öðrum Cata trade goods. Oft sem recipes eru að detta inn á djók verði, eins og Lifelike Toad. Sjaldgæfir hlutir (Blood of the Mountain, First Mate's Hat, Book of Glyph Mastery o.fl.) eru líka oft að koma inn á AH á gjafaprís - fólk áttar sig ekki á því hvað það er með í höndunum og er bara að hreinsa út í inventory.
En já Jón Ragnar, ég skil vel að mönnum finnist þetta óspennandi... en djöfull er þetta ávanabindandi þegar maður kemst í þetta!

Var harðkjarna raider frá Vanilla < - > WOTLK en dróg mig úr því í Cata og fór að dunda við þetta í staðinn. Mikið skemmtilegra, mikið meira loot og mikið minna drama!

Gerði það sama í EVE Online, dróg mig algjörlega út úr PVP/PVE og fór að treida. Endaði með 20x meiri pening en ég byrjaði með, sem verður að teljast sæmilegt!