Ef það er verið að spá í innflutningi á gömlum bílum í dag þá er það þyngdin sem skiptir máli.
Þegar Co2 losun liggur ekki fyrir er þyngd bílsins notuð til að ákvarða Co2 gildi sem aftur er notað til útreiknings á vörugjöldum.
E30 gæti þannig farið í lægri vörugjaldaflokk en E36 eða E34 þó svo að það sé 2500 vél í þeim öllum.
Quote:
Þegar ekki er unnt að leggja fram gögn um skráða losun koltvísýrings (CO2) viðkomandi ökutækis skal losun ökutækis á hvern ekinn kílómetra ákvörðuð sem 0,12 grömm á hvert kíló skráðrar eigin þyngdar ökutækisins að viðbættum 50 grömmum af koltvísýringi.
Vörugjöld sem eru í gildi á þessu ári eru:
Quote:
Gjaldflokkar skv. 3. gr. laganna um vörugjald af ökutækjum o.fl. verða þessir:
M0 0% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 0-80 g/km
M1 10% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 81-100 g/km
M2 15% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 101-120 g/km
M3 20% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 121-140 g/km
M4 25% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 141-160 g/km
M5 35% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 161-180 g/km
M6 36% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 181-200 g/km
M7 44% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 201-225 g/km
M8 48% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 226-250 g/km
M9 52% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) yfir 250 g/km
=> 1400kg bíll er með reiknað Co2 upp á 218g/km og ber þá 44% vörugjöld á þessu ári.
=> 1200kg bíll er með reiknað Co2 upp á 194g/km og ber þá 36% Vörugjöld á þessu ári.
=> 1000kg bíll er með reiknað Co2 upp á 170g/km og ber þá 35% vörugjöld á þessu ári.
Edit: E30 325i ber því 36% vörugjöld á þessu ári en E36 325i 44%.
Til að ná í 36% tollaflokkinn þarf bíllinn að vera léttari en 1250kg.