Mitt dæmi er svona: Ég hef keyrt brautina áður og fannst það gaman, en gerði það tvisvar á einu sumri og þótti það nóg. Núna langar mig að taka þátt í einni track æfingu, en efa það stórlega að ég myndi þá gera það oftar en einusinni og sennilegast myndi ég ekki keyra meira en 5 - 10 hringi. Til þess að ég fái að keyra þarf ég að gerast meðlimur í klúbb sem í raun þjónar mér engum tilgangi umfram þessum akstri og er á endanum peningasökkull sem er fráhrindandi fyrir nýliða sem áhuga hafa að prófa. Ég væri mikið meira til í að borga 2000 kall einusinni og fá að keyra í einn dag og segja það svo gott. Ef ég ákveð skyndilega að þetta er eitthvað sem ég vil endurtaka aftur og aftur um árið, þá geri ég það skynsama og gerist meðlimur.
Þangað til, þá er lítil ástæða til þess, hvort sem verið sé að ræða kvartmíluklúbbinn, BA eða DDA og ég er nokkuð viss um að ég sé ekki einn um þetta.
En, þetta er sennilegast ekki rétti þráðurinn til þess að ræða þetta mál.





